157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

NATO-þingið 2025.

405. mál
[15:51]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans svar. Mig langar kannski að spyrja í kjölfarið, af því að ég var að spyrja um þessa Evrópustoð og samstarf líkt þenkjandi ríkja, um þessa stækkun NATO. Nú er það orðinn veruleikinn að allar Norðurlandaþjóðirnar eru í NATO og nú eru öll NB8-ríkin í NATO sem gefur okkur færi á að starfa saman á þeim pólitíska vettvangi. Ég hef líka orðið var við að það er mikil trú á mætti þessa samstarfs sem gerir það m.a. að verkum að það eru fleiri lönd sem vilja taka þátt — ef ég tala um NB8 plús Þýskaland, Holland, Pólland og þau lönd. Ég velti fyrir mér hvort það hafi átt sér stað einhver óformleg tengslamyndun á vettvangi NATO-þingsins í kringum þingmenn frá þessum þjóðum.