ÖSE-þingið 2025.
Virðulegur forseti. ÖSE-þingið er þingmannahluti Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu sem samanstendur af fulltrúum frá þjóðþingum aðildarríkjanna. Hlutverk ÖSE-þingsins er að hafa áhrif á stefnumótun og áherslur í starfi ÖSE og að hafa eftirlit með og meta árangur af starfi stofnunarinnar.
Íslandsdeildina skipa þrír þingmenn, sú sem hér stendur, formaður, úr þingflokki Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, varaformaður, úr þingflokki Miðflokksins, og Pawel Bartoszek, úr þingflokki Viðreisnar. Varamenn eru þau Dagbjört Hákonardóttur úr Samfylkingu, Snorri Másson frá Miðflokki og Eiríkur Björn Björgvinsson frá Viðreisn. Ritari Íslandsdeildar ÖSE-þingsins er Hildur Edwald. Ég vil þakka hv. þingmönnum og alþjóðaritara fyrir sérstaklega ánægjulegt samstarf á liðnu ári.
Á venjubundnu ári kemur ÖSE-þingið saman til fundar þrisvar; vetrarfundur er haldinn í febrúar, ársfundur í júlí og haustfundur í október eða nóvember. Vetrarfundurinn fer ávallt fram í Vín en ársfundir og haustfundir fara fram í mismunandi aðildarríkjum ÖSE-þingsins.
Árið 2025 voru 50 ár liðin frá undirritun Helsinki-lokagerðarinnar en hún er grunnurinn að starfi ÖSE og var undirrituð af 35 ríkjum árið 1975. Með henni skuldbundu aðildarríki sig til þess að bæta samstarf sín á milli, virða landamæri hvert annars og tryggja mannréttindi íbúa sinna. 50 ára afmæli lokagerðarinnar var fyrirferðarmikið í starfi ÖSE á árinu og á öllum fundum var mikið rætt um þau gildi sem hún stendur fyrir og mikilvægi þess að halda þau í heiðri.
Vetrarfundurinn fór fram 20.–22. febrúar 2025 og var helsta umræðuefni fundarins árásarstríð Rússa í Úkraínu, staðan í alþjóðamálum, gervigreind, fjölmiðlafrelsi og kjarnorkuöryggi. Á vetrarfundum funda nefndir ÖSE-þingsins sem eru þrjár, fyrsta nefnd um stjórnmál og öryggismál, önnur nefnd um efnahagsmál, vísindi, tækni og umhverfismál og þriðja nefnd um lýðræðis- og mannréttindamál. Nefndirnar funda einnig sameiginlega á vetrarfundum. Á vetrarfundinum ávarpaði Vladimir Kara-Murza, rússneskur stjórnarandstæðingur, sameiginlegan fund nefndanna og það var mjög áhrifaríkt að hlusta á hann af því að hann er rússneskur stjórnarandstæðingur eins og ég sagði áðan og var þá nýsloppinn úr fangelsi í Síberíu þar sem hann hefði verið pyndaður og það hafði verið eitrað fyrir honum. Það var mjög átakanlegt að heyra hans frásögn á fundinum. Eins og ég sagði áðan hefur einmitt verið mikil umræða á þessum fundum um innrásarstríð Rússa í Úkraínu. Samhliða vetrarfundinum fundaði Íslandsdeild með Helgu Hauksdóttur, fastafulltrúa Íslands hjá ÖSE, sem kynnti starf ÖSE, fastanefndarinnar og fastafulltrúa. Þá funduðum við jafnframt með fulltrúum NB8-ríkjanna með landsdeild Úkraínu á ÖSE-þinginu.
Ársfundur ÖSE-þingsins fór fram í Portó í Portúgal 29. júní–3. júlí. Helstu mál á dagskrá voru 50 ára afmæli Helsinki-lokagerðarinnar og gildi hennar, staðan í Mið-Austurlöndum og árásarstríð Rússa í Úkraínu. Þið heyrið að það er verið svolítið sömu málin og að gefnu tilefni. ÖSE-þingið samþykkti Portó-yfirlýsingu á ársfundinum en hún er sett saman úr ályktunum málefnanefndanna þriggja, auk aukaályktana sem lagðar voru fram af einstöku þingmönnum. Í henni er lögð áhersla á gildi Helsinki-lokagerðarinnar og mikilvægi þess að halda þeim á lofti, árásarstríð Rússa í Úkraínu var fordæmt og áhersla lögð á mannréttindi og öryggismál. Í yfirlýsingunni kom fram stuðningur við tveggja ríkja lausn Palestínu og Ísraels. Þar segir að ÖSE-ríkin styðji viðurkenningu Palestínu sem leið til að tryggja frið og stöðugleika á svæðinu og fylgni við alþjóðalög. Á ársfundi var fjárhagsáætlun samþykkt en erfiðlega hefur gengið að fjármagna starf ÖSE-þingsins eftir að Rússar hættu að greiða aðildargjald. Þeir mæta ekki heldur á fundi. Ekki hefur náðst pólitísk samstaða um að vísa Rússum úr ÖSE. Í lok ársfundar var Pere Joan Pons kjörinn forseti ÖSE-þingsins til tveggja ára.
Haustfundur ÖSE-þingsins fór fram í Istanbúl í Tyrklandi 17.–19. nóvember og bar hann yfirskriftina „ÖSE-þingið 50 ára: Fjölþjóðasamvinna með samtali og samvinnu.“ Helstu mál á dagskrá voru, eins og á öðrum fundum, árásarstríð Rússa í Úkraínu, málefni Mið-Austurlanda og staða alþjóðasamvinnu í dag. Á haustfundi funda nefndirnar ekki en hann er meira í líkingu við ráðstefnu. Fundinum var skipt upp í þrjár umræður, sú fyrsta fjallaði um að efla samræður, sáttaumleitanir og traust á tímum óvissu. Þar var fjallað um djúpa kreppu alþjóðakerfisins þar sem stríð, loftslagsvá, upplýsingaóreiða og brostið traust grafa undan fjölþjóðasamstarfi. Lögð var rík áhersla á mikilvægi samtals og sáttmiðlunar. Önnur umræðan fjallaði um eflingu alþjóðaviðskipta. Þar var fjallað um hvernig breytt valdajafnvægi, efnahagsumbreytingar og versnandi öryggisástand veikja reglubundið alþjóðaviðskiptakerfi og kalli á sterkari fjölþjóðasamvinnu. Þriðja umræðan var um mannréttindi og stuðning við fjölskyldur og samfélög. Þar var fjallað um alvarlega stöðu alþjóðlega mannúðarkerfisins þar sem skortur á fjármagni, samhæfingu og pólitískum vilja ógnar mannréttindum fólks, sérstaklega barna, flóttafólks og berskjaldaðra hópa.
Samhliða haustfundinum fundaði Íslandsdeild með landsdeildum Norðurlandanna. Þar var rætt um samstarf Norðurlanda á vettvangi ÖSE-þingsins. Einnig fundaði Íslandsdeild ásamt landsdeildum NB8-ríkjanna með landsdeild Úsbekistans þar sem rætt var um hugsanlegt samstarf NB8-ríkjanna við Mið-Asíuríkin og hvernig skipuleggja mætti það samstarf og hvaða málefni væru þar efst á baugi.
Í maí sótti ég sem formaður Íslandsdeildar formannafund landsdeilda NB8-ríkjanna á ÖSE-þinginu í Ósló. Þar var þátttaka NB8-ríkjanna á ársfundi ÖSE-þingsins undirbúin og samstarf þeirra við Mið-Asíuríkin á ÖSE-þinginu rætt. Einnig var rætt um árásarstríð Rússa í Úkraínu en Mykyta Potúrajev, formaður landsdeildar Úkraínu á ÖSE-þinginu, var gestur fundarins. Þá tók ég þátt í kosningaeftirliti á vegum ÖSE-þingins í Albaníu í maí. Fyrir okkur sem höfum áhuga á lýðræðislegum umbótum og stjórnmálin voru þessar kosningar sérstaklega áhugaverðar og það verður bara að segjast eins og er að það er töluvert svigrúm fyrir stjórnvöld í Albaníu til að treysta betur lýðræðislega ferla, auka upplýsingaflæði og tryggja aðkomu minnihlutahópa að stjórnkerfinu.
Auk þessa að sækja fundi ÖSE-þingins hélt Íslandsdeild fjóra fundi á árinu. Á þeim fundum var þátttaka í fundum ÖSE-þingsins undirbúin.
Virðulegur forseti. Ég hef rakið í stuttu máli starfsemi Íslandsdeildar ÖSE-þingsins en ég vil að öðru leyti vísa til ársskýrslunnar í heild sem er aðgengileg á vef Alþingis.
Eins og ég hef komið hér inn á þá var það fyrirferðarmest á þessu ári að það eru 50 ár frá undirritun Helsinki-lokagerðarinnar og hún var mjög fyrirferðarmikil í starfi ÖSE-þingsins. Það er alveg ljóst að hún á fullt erindi í dag miðað við allt það umrót sem er í alþjóðakerfinu. Það er bara þannig að við okkur blasir allt önnur heimssýn heldur en við eigum að venjast og það hefur aldrei verið eins brýnt og nú að ríki virði og viðurkenni landamæri hvert annars og að mannréttindi íbúa verði tryggð eins og hin títtnefnda Helsinki- lokagerð kveður á um. Það er sótt að þessum gildum og eins og við höfum svo oft nefnt í þessum sal þá eigum við Íslendingar allt undir því að alþjóðalög séu virt. Af því að hér hefur líka verið rætt mikið um Grænland í dag, sem er ekki óeðlilegt, þá vil ég nefna að þó að ÖSE-þingið hafi ekki á síðasta ári talað um málefni Grænlands þá hef ég tekið eftir því að nýr forseti ÖSE-þingsins, Pere Joan Pons, hefur verið að setja þessi mál á dagskrá á vettvangi ÖSE og ég sé að hann er þegar farinn að undirbúa dagskrá vetrarfundarins í Vín og þar verða málefni Grænlands á dagskrá. Hann hefur talað mjög sterkt fyrir því að sjálfsákvörðunarréttur Grænlendinga sé tryggður og það gleður mig að það sé verið að taka þessi mál líka upp á vettvangi ÖSE-þingsins, sem verður gert núna bara eftir tvær vikur þegar Íslandsdeildin heldur til Vín á vetrarfundinn.
Ég vil líka segja að ég flutti ársskýrslu fyrir ári síðan án þess að hafa sótt einn einasta fund ÖSE-þingsins og ég gat nú ekki miðlað miklu af reynslu minni þá af því að ég þekkti vettvanginn ekki neitt. En þetta ár hefur verið fróðlegt og áhugavert að sjá hvernig ÖSE-þingið virkar. Mér heyrist, miðað við alþjóðavettvanga sem við þingmenn tökum þátt í, að þá sé kannski ÖSE-þingið ekki skilvirkasti vettvangurinn og kannski ekki endilega sá dýnamískasti en hann er engu að síður mikilvægur fyrir tengslamyndun og það er hægt að láta gott af sér leiða, svo sannarlega, en hann er ekki, myndi ég segja, eins skilvirkur og t.d. Norðurlandaráð og aðrir vettvangar sem standa okkur nærri. En þetta hefur verið fróðlegt og enn og aftur vil ég þakka þeim þingmönnum sem tóku þátt í starfi Íslandsdeildar ÖSE og ekki síst Hildi Edwald, ritara nefndarinnar, fyrir einstaklega gott og ánægjulegt samstarf.