157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Eiríkur Björn Björgvinsson muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá Víði Reynissyni um að hann verði fjarverandi næstu daga. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Hulda Bjarnadóttir, en fyrsti varamaður á lista hefur boðað forföll, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Sverrir Bergmann Magnússon.

Valdimar Breiðfjörð Birgisson og Sverrir Bergmann Magnússon hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.