aðgerðir vegna hækkandi verðbólgu.
Virðulegur forseti. Ég held að ef við lesum umsögn Seðlabankans þá sé augljóst að hér er ekki um einskiptishækkun að ræða heldur hefur Seðlabankinn akkúrat áhyggjur af því að verðbólgan sé orðin þannig að það sé að fara fram önnur umferð og að verðbólgan í sjálfu sér valdi verðbólgu.
Ég ætla líka að segja að það er mjög gott að lánshæfismatið hafi hækkað. Við erum búin að vinna að þessu í mörg ár og höfum fengið jákvætt skref í hvert sinn vegna þess að allar ríkisstjórnir hafa verið að vinna að þessu, ekki bara sú sem situr núna. Hún er vissulega á margan hátt að halda áfram að gera það sem sú síðasta gerði og það er bara vel. Hins vegar lofaði þessi ríkisstjórn að slá niður verðbólgu og vexti og því miður er staðan sú að það gengur ekki. Það plan hefur mistekist. Verðbólgan er 5,2% og hún stefnir í að vera 5% næstu þrjá mánuði. Atvinnuleysi er að vaxa, hagvöxtur er að minnka, þannig að það sem ríkisstjórnin ætlaði að gera á fyrsta ári er að mistakast og það eru vonbrigði þegar verðbólgan er svona. Ég held að ég og ríkisstjórnin og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra séum algjörlega sammála um það að þegar það er búið að vera viðvarandi um tíma þá koma gjarnan verkalýðshreyfingin og ríkisstjórnir sem hugsa um hag fólksins í landinu og setjast saman og segja: Hvað getum við gert í því? Og hvað gerðum við, m.a. þegar hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra var formaður eins stærsta verkalýðsfélagsins? Jú, við settum einskiptishækkun á vaxtabætur upp á 6 milljarða og við fórum í fríar skólamáltíðir og við hækkuðum húsnæðisbætur og við hækkuðum barnabætur og við gerðum fleiri hluti til að koma til móts við fólkið í landinu sem er með lægri tekjur. Nú segja forsætisráðherra og fjármálaráðherra, og hafa sagt á síðustu vikum: Planið heldur, við ætlum ekki að gera neitt. Ríkisstjórn Svíþjóðar og Danmerkur og núna síðast Japans — Thatcher Japans er að horfa á það að lækka skatt á matvæli, (Forseti hringir.) virðisaukaskattinn á mat, eins og við lögðum fram hér í Framsókn.
Nú langar mig að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra: (Forseti hringir.) Hvað segir Ragnar Þór Ingólfsson í dag? Því að ég man hvað hann sagði 2023.