aðgerðir vegna hækkandi verðbólgu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir spurninguna. Hvað segir hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í dag? Hann segir bara allt ágætt. Það gengur vel hjá okkur í þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Við erum að fara að kynna hér húsnæðispakka tvö. Við erum að vinna að því að rjúfa kyrrstöðu síðustu ára og áratuga í mörgum málaflokkum sem m.a. snúa að mínu ráðuneyti. Uppbygging hjúkrunarheimila er eitt. Þar hefur orðið algjör kúvending og við stefnum á að byggja yfir þúsund rými á kjörtímabilinu. Það er líka ákveðin kyrrstaða rofin varðandi uppbyggingu í húsnæði. Hér gerðum við mikilvægar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu fyrir jól sem eru að skila sér í meiri áhuga verktaka á að byggja inn í kerfið eins og það var alltaf hugsað. Sömuleiðis er hafin vinna við að fá aðila til þess að byggja upp í Úlfarsárdal, nýtt hverfi eða viðbót við það hverfi sem er fyrir, og er fyrsti áfangi í uppbyggingu 10.000 manna íbúabyggðar þar. Þetta eru allt lykilmál sem snúa að því til lengri tíma að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði þar sem húsnæðisverð og staðan á húsnæðismarkaði hefur verið einn helsti drifkraftur verðbólgu síðustu ára og áratuga. Þetta er verkefni sem okkur gengur vel með og er að vænta góðra frétta af þeim málum og þeim málaflokki á næstu misserum, eitthvað sem ég get alveg fullyrt nú, eins og ég gerði þá, að fyrri ríkisstjórn hafi algerlega mistekist.