157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

aðgerðir vegna hækkandi verðbólgu.

[15:16]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra segir bara að það gangi allt vel og hann segir bara allt gott. Oddviti flokksins sagði í svari við sambærilegri fyrirspurn minni fyrir stuttu síðan að það gengi rosa vel. Það væru allir góðir vinir í ríkisstjórninni. Fólkinu í landinu er bara alveg slétt sama um það. Síðasti húsnæðispakkinn hækkaði gjöldin og virðisaukann. Hann hækkaði verðbólguna. Stýrivextirnir lækkuðu ekki við hann. Fólkið í landinu er að missa vinnuna í vaxandi mæli og dýrtíðin er farin að taka sinn toll og ríkisstjórnin segir pass, við ætlum ekki að gera neitt. Við ætlum ekki að gera það sama og þau gerðu í Danmörku og Svíþjóð af því við erum með plan. Meira að segja fólkið sem sagði að 6 milljarðar í vaxtabætur væri ekki nóg, það þyrfti að vera 10 eða 20, segir að það þurfi ekkert núna af því að við séum að rjúfa kyrrstöðuna. Lítillætið heldur áfram. Við erum að ræsa vélarnar. Hvað voru mörg hjúkrunarrými tekin í notkun á árinu 2025? (Forseti hringir.) Hvað verða þau mörg 2026? Það er ekki nóg að taka skóflustungur, það verða til holur. Það verða ekki til hjúkrunarrými við það.