157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

breyting á búvörulögum og frumvarp um grásleppuveiðar.

[15:26]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég er eiginlega á þeirri skoðun að það hefði farið betur á því að hv. þingmaður hefði verið orðlaus en að fara með þessa steypu hér úr ræðustól sem hann gerði. [Hlátur í þingsal.] En ég átta mig ekki á því af hverju það stuðaði hv. þingmann svo að ég nefndi Mjólkursamsöluna. Það kemur fram í málgagni þingmannsins, Morgunblaðinu, að Mjólkursamsalan óskaði eftir þessari umsögn hjá lögmönnunum. Er hv. þingmaður að draga dómstólana okkar þannig niður að halda því fram að umbeðin umsögn í þinglegri meðferð frumvarps jafnist á við hæstaréttardóm? Hvað er ég að hlusta á hérna af hálfu fulltrúa löggjafarvaldsins? Ég bið menn að róa sig hér þegar þeir fara í dramatíkina alveg í fleiri, fleiri hringi.

Þetta er staðan: Umsagnir bárust á föstudag og já, það er býsna mikið að gera hjá atvinnuvegaráðherra af ýmsum ástæðum. Ég er ekki búin að kynna mér þær umsagnir sem komu inn í þinglegri meðferð á mánudegi klukkan þrjú. Líkt og ég segi, ég treysti atvinnuveganefnd. Ég ætti kannski frekar að segja miðað við þessa steypu að ég treysti meiri hluta atvinnuveganefndar ef þetta eru vinnubrögðin sem koma frá minni hlutanum. (Forseti hringir.) Þetta er staðan. Málið er í þinglegri meðferð. Það verður tekið tillit til þeirra umsagna sem koma og ég, líkt og aðrir þingmenn, hlíti því hvað kemur út úr nefndinni og mun greiða atkvæði um málið þegar þar að kemur.