157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

greinarskrif um breytingar á lögum um almannatryggingar.

[15:30]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Það er vissulega rétt sem hann segir. Ég hef kynnt mér efni þessarar greinar sem í grófum dráttum varar almennt við því að fjárútlát hins opinbera fylgi viðmiðum sem gætu hækkað hraðar heldur en tekjur ríkissjóðs og er sem slík algerlega eðlileg. Það verður þá að horfa til þess nákvæmlega hvaða útgjöld er hér verið að ræða um, það eru lágmarksbætur almannatrygginga vegna örorku. Þær bætur drógust verulega aftur úr allri launaþróun á Íslandi um langt skeið. Það hefur að því er virðist vera verið til þess að gera mjög breið samstaða í þinginu um að þessu þyrfti að breyta, enda hafa bæturnar nú um alllangt skeið, raunar hjá tveimur síðustu ríkisstjórnum, hækkað hraðar heldur en það viðmið sem kollegar mínir vísa til, þ.e. miðað við launavísitölu. Þó er það þannig að það er enn langt í land. Það er skýr afstaða þessarar ríkisstjórnar að þetta þurfi að setja í forgang; að ná aftur eðlilegu jafnvægi milli þeirra bóta sem þeir sem verða fyrir því óláni að þurfa að þiggja þær en geta ekki unnið sér farborða fá til að jafna þeirra aðstöðu. Það er mjög mikilvægt að við vinnum á þeim órétti sem þarna hefur átt sér stað. Þetta er skýrt ákveðið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins og að sjálfsögðu stöndum við með þeim sáttmála.