aðgerðir stjórnvalda vegna aukins atvinnuleysis.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þetta svar. Ekkert til að hafa áhyggjur af, sagði hæstv. ráðherra. Þar deili ég ekki sömu sýn og sömu skoðun. Ég hef verulegar áhyggjur af þessari stöðu, virðulegi forseti. Það er ástæðan fyrir því að ég stend hér og er að spyrja um þetta vegna þess að ef maður skoðar fjármálaáætlunina og fjárlögin og síðan rauntölurnar og síðan það sem greiningaraðilarnir eru að spá, þá er það alveg ljóst að hvorki fjármálaáætlunin né fjárlögin standa hvað þetta varðar. Þær spár fyrir þetta ár eru miklu verri varðandi atvinnuleysið en gert var ráð fyrir og eru því miður að raungerast í þeim tölum sem við erum að sjá. Um það snýst spurningin sem ég var að reyna að koma frá mér, það er alveg ljóst að sú aukning sem var sett inn við 2. umræðu fjárlaga mun ekki duga til vegna þess að við erum að sjá miklu hærri tölur en gert var ráð fyrir. (Forseti hringir.) Spurningin er því þessi: Þarf ekki að bregðast við því fyrr en seinna?