almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni mjög vont frumvarp hæstv. ríkisstjórnar. Við höfum nú séð þau mörg slæm og þetta er eitt af topp þremur í hópi verstu frumvarpa sem eru að koma frá hæstv. ríkisstjórn á þessu ári. Mig langar, virðulegur forseti, að fá að bera hér ofan í grein sem hagfræðingarnir Axel Hall og Gylfi Zoëga skrifuðu á dögunum í tímaritið Vísbendingu. Þeir segja m.a. í greininni, með leyfi forseta:
„Samkvæmt frumvarpinu munu greiðslur aldrei hækka minna en vísitala neysluverðs. Ef launavísitala hækkar meira en verðlag þá hækka þær í takt við laun en ef verðlag hækkar meira þá halda þær, gagnstætt launum, kaupmætti sínum og hækka þá meira en launavísitalan. Þetta er hinn svokallaði „tvöfaldi lás“. Í frumvarpinu segir að það muni tryggja þeim sem fá greiðslur frá almannatryggingum að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um.“
Virðulegur forseti. Hér segir: „að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um.“ Og hagfræðingarnir halda áfram:
„Hér kemur fram í greinargerð með frumvarpinu að bótaþegar muni að jafnaði fá meiri hækkanir en samið er um í kjarasamningum og þegar verðbólga hækkar umfram launavísitölu þá verður tvöfaldi lásinn til þess að bætur hækka tvisvar, einu sinni vegna verðbólgu og svo annað sinnið vegna hækkunar launavísitölu. Þá gætu bætur hækkað meira en laun láglaunahópa. Líklegt er að slíkt leiði til þess að fleiri einstaklingar með takmarkaða starfsgetu dragi úr þátttöku sinni á vinnumarkaði.“
Hér er enn einn kjarninn í þessu máli, virðulegur forseti. Það er líklegt að slíkt leiði til þess að fleiri einstaklingar með takmarkaða starfsgetu dragi úr þátttöku sinni á vinnumarkaði. Hagfræðingarnir halda áfram:
„Ef nú laun hækka meira en framleiðni þá munu bætur almannatrygginga, sem nema um 5% af vergri landsframleiðslu, hækka meira en 2% á ári. Heildarútgjöld vaxa þá meira en sem nemur framleiðnivexti, meira en stöðugleikareglan kveður á um að forminu til. Þá verður ekki litið fram hjá hlut skattgreiðenda í þessu efni, þeim sem greiða fyrir tilfærslurnar.“
Virðulegi forseti. Það eru einhverjir sem greiða brúsann fyrir þessar millifærslur og það eru skattgreiðendur þessa lands. Og hagfræðingarnir halda áfram:
„Með fyrirhuguðum breytingum á tilfærslukerfum verður þó ekki sama hljóð og mynd fyrir skattgreiðendur og þá sem tilfærslna njóta.“
Í lokaorðum og í niðurlagi greinarinnar segja hagfræðingarnir:
„Fyrir Alþingi liggur frumvarp sem mun sjálfkrafa bæta kjör bótaþega umfram kjör launafólks. Algengt er að þróun launa sé ósjálfbær og leiðréttist síðan með verðbólgu sem fólk á bótum fær þá bætta. Bætur almannatrygginga hækka þá vegna launahækkana og síðan enn meira þegar verðbólga eykst, verðbólgan minnkar kaupmátt launafólks en ekki kaupmátt bótagreiðslna. Bótaþegar fá þannig bæði kjarabætur sem innstæða er fyrir og einnig innstæðulausar kjarabætur á meðan kaupmáttur launafólks eykst einungis ef innstæða er fyrir þeim. Þessi greinarstúfur er skrifaður í þeirri von að koma megi í veg fyrir að mistök verði gerð sem stefni stöðugleika ríkisfjármála í óefni. Slíkt myndi bitna á getu ríkisins til þess að standa straum af ýmsum velferðarmálum, efla menntun eða heilsugæslu, svo nokkur dæmi séu tekin.“
Hagfræðingarnir ljúka orðum sínum á því að segja:
„Vonandi bera stjórnmálamennirnir gæfu til þess að hlusta á þau mörgu varúðarorð sem hafa verið höfð um þetta frumvarp og stjórnmálin fari ekki bara sínu fram.“
Hér eru einir fremstu hagfræðingar landsins að bætast í hóp allra þeirra sem hafa varað við afleiðingum þessa frumvarps og það á ekki að hlusta. Það er ekki bara þannig, virðulegur forseti, að hér séu bara einhverjir tveir hagfræðingar og Samtök atvinnulífsins að vara við þessu frumvarpi. Nei, það er verkalýðsforystan sem varar við afleiðingum þessa frumvarps, verkalýðsforystan sem á nú sína fulltrúa hér inni. Fyrrverandi leiðtogar í verkalýðsforystunni eru hér inni og ekki eru þeir að hlusta á varnaðarorð síns fólks, sinna gömlu samherja. Og það eru líka fjármálaráðherra og fjármálaráð sem vara við þessu.
Í þessum varnaðarorðum er verið að benda á að með þessum aðgerðum munum við kynda verðbólgubálið enn frekar. Og hafa heimilin í landinu, skattgreiðendur þessa lands, ekki fengið nóg af hagstjórnarmistökum hæstv. ríkisstjórnar og eru að borga það núna í hárri verðbólgu þrátt fyrir þau varnaðarorð sem höfð voru uppi núna í desember? Og núna er meira að segja hæstv. fjármálaráðherra kominn á þann vagn að vara við afleiðingum þessa með verkalýðsforystunni og helstu hagfræðingum landsins. En nei, það á ekki að hlusta. Og hvað gerist þegar verðbólgubálið heldur áfram að brenna? Ja, það eru skattgreiðendur þessa lands, það eru heimilin í landinu, sem munu þurfa að borga fyrir það.
Virðulegur forseti. Þetta mál er stórkostleg hagstjórnarleg mistök. Allir aðilar sem hafa sent inn umsagnir þvert á hagsmuni eru sammála um það. Það er alvarlegt þegar við erum að búa til kerfi sem eykur enn frekar á hvatana til þess að fólk hætti þátttöku á vinnumarkaði og kjósi frekar að fara á bætur. Hvers lags kerfi erum við að búa til, virðulegur forseti, þegar við erum farin að búa til sjálfvirka hvata til þess að fólk fari frekar á bætur en að vera þátttakendur á vinnumarkaði? Þetta mun leiða til hærri verðbólgu. Þetta mun enn þyngja byrðarnar á vinnandi fólk í þessu landi. Af því að það er á endanum vinnandi fólk, skattgreiðendur, sem mun þurfa að borga þennan brúsa. Í frumvarpinu er skotið á að þetta verði 3 til 4 milljarðar á ári. Ég er alveg viss um að þetta verða frekar 5 til 7 milljarðar. Þetta mun kosta 20 til 30 milljarða á kjörtímabili. Og ég vil bara minna á það að hér var blásið í herlúðra í sumar þar sem búið var að finna 3 milljarða í vegabætur til að laga vegina. En hér erum við jafnvel að fara að auka byrðarnar á skattgreiðendur um 20 til 30 milljarða á kjörtímabili í enn þá meira millifærslukerfi sem mun enn frekar hvetja fólk til þess að fara á bætur og hætta þátttöku á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég segi: Ábyrgð Viðreisnar er mikil í þessu máli. Ábyrgð Viðreisnar er gríðarlega mikil í þessu máli. Það er algerlega á hreinu, og það er algerlega komið á hreint, að vinnandi fólk, skattgreiðendur þessa lands, á ekki skjól hjá Viðreisn eða Samfylkingunni. Það er algerlega á hreinu af því að hér er verið að senda skattgreiðendum enn einn reikninginn fyrir gæluverkefnum Flokks fólksins.