almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Það er ótrúlegt að heyra hæstv. ráðherra koma hingað upp og vera með þvílíkar dylgjur hér í ræðustól og ég myndi segja að það væri fyrir neðan hennar virðingu að koma hingað upp og tala með þessum hætti. Hvað var ég að tala um? Ég var að benda hér á öll þau varnaðarorð sem er búið að hafa af því að það er nefnilega þannig, og það er eitt sem hæstv. ráðherra verður að skilja, að það er ekki nóg til og meira frammi. Og þegar það á að fara að auka hér um milljarða á hverju einasta ári útgjöld úr sjóðum ríkissjóðs eru það skattgreiðendur þessa lands sem borga. Og þegar hæstv. ráðherra heldur því fram að ég sé ekki að tala hér fyrir fólkið í landinu, er vinnandi fólk í landinu ekki hluti af fólkinu í landinu? Eru skattgreiðendur ekki hluti af fólkinu í landinu, sem eiga að borga fyrir allar þessar vegferðir? Það er ekki hæstv. ráðherra sem er að taka þetta úr eigin vasa. Hæstv. ráðherra er að taka þetta úr vasa vinnandi fólks í landinu, skattgreiðenda. Það eru skattgreiðendur sem eiga að borga fyrir allt þetta, öll þessi gæluverkefni ríkisstjórnarinnar, enda eru skattgreiðendur byrjaðir að borga. Skattgreiðendur fengu 30 milljarða kr. reikning núna eftir áramótin í hækkuðum sköttum og gjöldum og hver verður reikningurinn á næsta ári, í næstu fjárlögum hjá hæstv. ríkisstjórn?
Það er nefnilega málið, virðulegur forseti, að það eru skattgreiðendur þessa lands sem borga fyrir þetta allt saman. Það er rosalega gott að geta komið hingað upp, ausið úr sjóðum ríkissjóðs, úr sjóðum skattgreiðenda, barið sér á brjóst og verið góður á kostnað annarra.