157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[16:02]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og þetta er áhyggjuefni. Það er mikið áhyggjuefni að umsagnaraðilar sem sendu inn umsagnir virðast ekki fá neina áheyrn hjá meiri hlutanum hér á þingi. Þá veltir maður fyrir sér: Af hverju ættu þeir að senda inn umsagnir? Nú er að verða komið meira en ár og það hefur varla verið tekið tillit til umsagnaraðila nema að rosalega litlu leyti og yfirleitt þá þegar meirihlutaþingmenn hafa fengið minnisblað frá ráðuneytum þess efnis að þau séu sátt við að breyta málum. Þessu er orðið eitthvað öfugt farið.

Hæstv. ráðherra sagði hér áðan að við værum að tala gegn almenningi og lítilmagnanum en málið er að það liggur fyrir í þessu máli að það mun auka verðbólgu alveg eins og það lá fyrir í fullt af málum fyrir jól að verðbólgan myndi aukast. Það var ekki hlustað og hver verður verst úti þegar verðbólga eykst? Það eru þeir sem hafa minnst á milli handanna. Mér finnst að það vanti skýringar. (Forseti hringir.) Af hverju á samt að keyra þetta mál áfram? Hefur hv. þingmaður skýringar á því af hverju á að keyra þetta mál áfram þrátt fyrir að verðbólga verði væntanlega hærri fyrir vikið?