almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég vil bara fagna sérstaklega að sjá hér hv. þm. Grím Grímsson koma í pontu. Ég vil fagna því sérstaklega að sjá hér þingmann Viðreisnar, því að a.m.k. ekki meðan ég hef staðið hér og verið hér í þingsal að ræða þetta mál hef ég séð þingmenn Viðreisnar koma hingað upp og vilja tjá sig um þetta mál. Það má vera að það sé rangt hjá mér, að einhverjir hafi komið hér upp og haldið þrungnar ræður og þungar um málið því til stuðnings.
Hv. þingmaður spyr um muninn á launaþróun og launavísitölu. Er það ekki rétt, hver sé munurinn í eðli sínu? (GrímG: Nei, ég veit muninn á því. Ég spyr um muninn á því og breytingunni. )Munurinn á breytingunni er sá, af því að það felst í muninum á launavísitölu og launaþróun, að launavísitalan — að launaþróun tekur ekki til launaskriðsins. Þú getur verið með hópa. Tökum sem dæmi að í fyrra var hópur sem fékk 25% launahækkun, að mig minnir 24–25% launahækkun, kennarar. Það kemur inn í launavísitöluna en launaþróunin er allt annars eðlis. Þannig að það er stóri munurinn á því að fara að taka inn launavísitöluna þegar ákveðnir hópar, sem fá kannski miklu meiri hækkanir en almennur vinnumarkaður — og við höfum verið að sjá það sérstaklega hjá opinbera markaðnum að ákveðnir hópar innan opinbera geirans hafa verið að fá alveg sérstaklega háar hækkanir. Það er náttúrlega svolítið sérstakt að sjá að launavísitala opinbera geirans sé miklu hærri heldur en almenna geirans en það er nú almenni geirinn sem borgar fyrir hitt — að þá mun það koma inn í launavísitöluna en er ekki inni í launaþróuninni.