almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvari mínu. Það var kannski ekki akkúrat það sem ég var að leita eftir heldur er það þannig að hið óbreytta í þessari grein er að laun, hvort sem við miðum við launaþróun eða launavísitölu — þá er alltaf gólf inni sem er þó þannig að bæturnar hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þannig að bæturnar taka nú þegar mið af vísitölu neysluverðs og hækka samkvæmt því a.m.k. Í seinna andsvari mínu langar mig því til að velta því upp við þingmanninn hvort það sé ekki innifalið í núverandi lögum og ákvæðinu eins og það er að það verði hvort sem er hækkun. Hvort hann hafi einhverja hugmynd um hver sé munurinn á hækkuninni samkvæmt núverandi ákvæði og hver breytingin verði samkvæmt ákvæðinu í frumvarpinu.