almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, ef við eigum að geta fjallað um mál málefnalega í þessari málstofu sem Alþingi er, virðulegur forseti, þá þarf að vera hægt að ræða málin efnislega og gera þau betri. Það er út af því sem eru þrjár umræður um mál á Alþingi. Það er þess vegna sem það er umsagnarferli í nefndum Alþingis. Það er til að kalla fram athugasemdir og hvað má betur fara. Erum við að gera rétt? Eru málin að ná markmiðum sínum? Hvernig á að vera hægt að sinna þessari vinnu, virðulegi forseti, þegar hæstv. ráðherrar, sem eru líklega hugmyndasmiðir þeirra mála sem við ræðum hér, koma hér bara með einhver slagorð og dylgjur og fjalla ekkert, nákvæmlega ekkert, efnislega um málin? Það er varla hægt að sjá að nokkur úr meiri hlutanum komi hér til að rökstyðja málið og til að svara fyrir þær athugasemdir sem komu við málið. Það er bara ekki til. Svona málflutningur getur ekki gengið hér, virðulegur forseti.