157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[16:17]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér um stórt og mikið mál. Ég tek alveg undir markmið þessa máls. Það er bara mjög verðugt verkefni, sem við hér sem erum þjóðkjörin eigum alltaf að hafa í huga, að allir hópar þessa samfélags hafi það betra. Við þurfum að tryggja kjör og aðbúnað allra hópa. Það er mjög mikilvægt. Sá hópur sem hér er stefnan að bæta kjörin hjá, ellilífeyrisþegar og örorkuþegar, á þetta alveg skilið. Það er ekki spurningin hér. Spurningin hér er: Hvernig bætum við kjör þeirra best? Hvað gerum við hér þannig að þeir fái raunverulegar kjarabætur? Hvað gerum við hér til þess að aðgerðir okkar bíti okkur svo ekki í skottið síðar og komi niður á okkur? Það er einmitt það sem hefur komið fram við meðferð þessa máls frá mörgum hagaðilum, öllum hagfræðingum sem hafa tjáð sig um þetta mál, fyrir utan hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra. Allir aðrir hagfræðingar vara við þessu máli, að það muni ekki ná markmiðum sínum.

Því miður er það að gerast aftur og aftur með mál frá þessari ríkisstjórn að þau koma með þau óunnin, þau koma með þau gegn allri ráðgjöf hingað inn og keyra þau í gegn óunnin. Það vantar áhrifamatið, það kemur ekkert áhrifamat. Það kemur hér inn fullt af umsögnum um málin frá núverandi stjórnarflokkum þar sem lýst er áhyggjum og bent á vankanta. Þeim gestum er varla boðið á nefndarfundi hjá tilheyrandi nefndum til að laga málin. Þau setja bara hausinn undir sig og halda áfram án þess að bregðast nokkuð við athugasemdum, aldrei hlustað á athugasemdir. En það er einhver ástæða fyrir þessu þinglega ferli. Það er til þess að fá athugasemdir frá þeim sem til þekkja, þeim sem eru á vettvangi, þeim sem hafa verið að vinna í málinu og eru sérfræðingar og við getum þá metið það sem þeir segja. Nei, það er ekki einu sinni reynt að meta það, það bara verður að klára málin alveg nákvæmlega eins og þau komu frá ríkisstjórninni, sama hvað ríkisstjórnin var búin að hafa mikið samráð, sama hvað ríkisstjórnin var búin að undirbúa þetta mikið áður en hún lagði þetta fram. Nei, áfram skulum við halda. Svo koma þau bara með einhver slagorð og orðasalat um það hvað þetta á að vera frábært fyrir alla og við ætlum bara að bæta kjörin og ætlum bara að taka þetta frá þessum ríku gróðapungum og færa til ykkar, kæru vinir. Svona tala stjórnarflokkarnir. Svona tala þeir, því miður. En ef þetta verður raunin — svona var þetta í veiðigjöldunum. Það var bent á að vinnubrögðin og undirbúningurinn og áhrifamatið væri ekkert. Nei, nei, það var bara að þessir ríku áttu að borga, það voru bara sægreifarnir sem áttu að borga þetta. Hvað kom í ljós? Hverjir eru búnir að borga fyrir veiðigjaldafrumvarpið? Eru það stóru útgerðarfyrirtækin? Ég hef ekki enn þá séð að þau séu að fara að leggja til peninga í ríkissjóð en verkafólkið á að fara að borga með störfunum sínum. Litlu sjávarbyggðirnar eru farnar að borga með því að útgerðirnar eru farnar að sigla í burtu til þeirra stærri. Nýsköpun er farin að borga, færri styrkir í nýsköpun. Það er alltaf einhver sem borgar, en ekki þeir sem ríkisstjórnin segir.

Hvernig var þetta fyrir áramót þegar átti að hækka skatta um 30 milljarða, 7,5 milljarða í vörugjöld, kílómetragjöld sem áttu að fara í vegina, allt afsakað með því að það ætti að fara í vegina? Hverjir hélt ríkisstjórnin að myndu borga þetta og hverjir eru að borga þetta núna? Jú, það eru háskólanemarnir sem keyra á litlum og sparneytnum bílum. Nú er aksturspeningurinn þeirra búinn að hækka að meðaltali um 15.000 kall á mánuði. Það eru eldri borgararnir sem voru á litlum og sparneytnum bílum. Þeir borga. Það eru tekjulægri fjölskyldurnar sem geta ekki endurnýjað bílinn sinn núna í sparneytnari bíl eða öruggari bíl af því að það hækkuðu allir bílar. En hverjir borguðu mest í þessu? Jú, það er aftur tekjulægsta fólkið sem á að þykjast vera að hjálpa í þessu máli. Hvað eru þau búin að borga mikið með hærri verðbólgu, út af aðgerðum og skattahækkunum ríkisstjórnarinnar sem er búið að vera að vara við hér allt síðastliðið haust fram að áramótum og eru búnar að orsaka tvær verðbólguhækkanir? Það er búið að stoppa vaxtalækkunarferlið enn og aftur. Það er eitt stærsta afrek ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að stoppa vaxtalækkunarferlið tvisvar og hækka verðbólgu. Hvernig hjálpar það ellilífeyrisþegum og öryrkjum að hækka verðbólguna, senda á þau kílómetragjald, senda á þau vörugjaldahækkun? Hvernig hjálpar það þeim?

Og hvað mun þetta frumvarp sem við erum að ræða hér í dag orsaka mikla verðbólguhækkun síðar? Hvaða reikning eruð þið að senda inn á tekjulægstu heimilin í landinu, hæstv. ríkisstjórn? Eruð þið tilbúin að koma hingað og svara því? Eruð þið tilbúin að koma og svara því hvernig þetta muni ekki hækka verðbólguna, þessi óvissa sem er sett inn í ríkisfjármálin, þetta sem dregur úr aðhaldi í ríkisfjármálunum, þetta sem skapar alla þessa óvissu og dregur úr aðhaldi sem er hinn versti kokteill til að hækka verðbólguna í landinu? Er einhver stjórnarliði sem treystir sér til að koma hingað upp og rökstyðja hvernig það getur ekki gerst?

Stundum er betra heima setið en af stað farið. Eins og ég sagði áðan er markmiðið göfugt og ég tek alveg undir það. En þetta er bara kolröng leið að því. Allt í þinglegri meðferð þessa máls hefur bent til þess að svo sé. Samt ætlar ríkisstjórnin ekki að hlusta og enn einu sinni mun koma að því að við þurfum að koma hingað upp, sem maður vill ekki þurfa að gera en mun neyðast til, og segja: Við sögðum ykkur þetta. Við bentum á þetta allt saman. Við bentum ykkur á allt. Þið eruð að gera verra fyrir fólkið sem þið þykist vera að gera betur fyrir. Það er bara nákvæmlega það sem mun gerast. Það er ástæðan fyrir því að við stöndum hér í dag og erum að ræða þetta mál. Það er fyrir fólkið sem er sagt að þetta eigi að koma að gagni en mun vinna gegn því.

Þá er kannski hægt að spyrja: Hvernig er hægt að hjálpa þessum hópum og hvernig hefur þeim verið hjálpað? Hafa þeir verið skildir eftir? Nei, þetta eru einmitt þeir hópar þar sem kaupmátturinn hefur aukist hvað mest undanfarinn áratug. Þetta eru þeir hópar sem þurfa mest á því að halda að verðbólgan lækki og hér er verið að koma með verðbólguhvetjandi frumvarp. Það er einhver ástæða fyrir því — þegar stjórnvöld eru búin að gera fleiri fleiri aðgerðir til að hjálpa nákvæmlega þessum hópum sem er fjallað um í þessu máli, undanfarinn áratug er búið að gera svo margt til þess — að þessi leið var ekki farin, af því hún var ekki talin skynsamleg. Hún var ekki talin vera sú leið sem hjálpaði mest. Við þurfum bara að halda áfram að fara skynsamlegar leiðir til að hjálpa þeim tekjulægstu. Það er það sem við þurfum að gera.

Þetta mál getur meira að segja orsakað það að ellilífeyrisþegar fái lægri tekjur í ellilífeyri út af svokölluðum víxlverkunarreglum og öðru slíku. Við skulum bara hafa það á hreinu að ef það verða færðir meiri peningar yfir í millifærslukerfin, inn í bótakerfið í almannatryggingunum, þá gæti meiri partur af ellilífeyrisþegum þessa lands fengið minna úr sínum lífeyrissjóði. Þetta getur dregið saman ellilífeyri almennings, það er bara þannig. Er það það sem þessi hæstv. ríkisstjórn er að leggja til hérna? Er það markmiðið að koma hér og láta ellilífeyrisþega halda að þeir séu að fara að fá miklu meiri kjarabót og þessi ríkisstjórn sé svo góð við þau og svo þegar þau fá launaseðilinn þá verði bara minna í umslaginu plús verðbólguhækkunin? Er það þetta sem er verið að leggja til hérna? Er það rétt skilið hjá mér? Ég vona að einhver stjórnarliði geti komið upp og útskýrt fyrir mér hvort þetta sé rétt skilið hjá mér.

Við skulum aðeins fara yfir það hvernig þessum hópum hefur verið hjálpað. Það bara á sér langa sögu og margur hefur verið árangurinn. Það byrjaði nú með því að leggja til kerfisbreytingu hér hjá ellilífeyrisþegunum, það var að vísu gert í örorkukerfinu líka. En það tókst ekki fyrr en fyrir einu og hálfu ári síðan að klára það hér á þinginu hvað örorkuna varðar en það var gert fyrir ellilífeyrisþega þegar var dregið verulega úr skerðingum. Skerðingarnar fóru úr krónu á móti krónu niður í krónu á móti 0,45 aurum. Það var sett inn 20.000 kr. frítekjumark sem var svo hækkað upp í 36.000 og er nú nýbúið að hækka upp í 50.000, minnir mig. Það breytti töluvert miklu og dró verulega úr skerðingum ásamt því að það kom 200.000 kr. frítekjumark fyrir þá sem vinna og það var líka heimilt að selja aðra fasteign án þess að það skerði ellilífeyrinn. Það voru nú risakjarabætur. Bara þessar breytingar hafa aukið útgjöld úr ríkissjóði um yfir 80 milljarða á ári í minni skerðingar, við skulum hafa það alveg á hreinu. Þetta er stór aðgerð í því hvað kaupmátturinn hefur aukist.

Svo var líka sett inn nýtt lægsta skattþrep og því stillt þannig af að það myndi gagnast þeim tekjulægstu mest, draga úr skattbyrði lægstu tekna. Þeirri vinnu var stýrt af Axel Hall hagfræðingi sem skrifaði einmitt greinina sem var vitnað hér í áðan m.a., þannig að hann veit nú hvernig kerfin virka og hvernig kaupmáttur þessa hóps virkar af því að hann fór í gegnum allt þetta og rannsakaði það þegar við vorum að breyta tekjuskattskerfinu og áfram héldum við, við verðbættum svo persónuafsláttinn þannig að hann hækkar samkvæmt verðbólgunni plús 1% álag. Það kom líka nýtt inn þannig að það er búið að draga verulega úr skerðingunum, núna líka hjá öryrkjunum og hjá ellilífeyrisþegunum, auka hvata til virkni og draga úr skattbyrðinni. Svo var greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðiskerfinu og lyfjakaupakerfinu endurskoðað og breytt með þessa hópa í huga. Svo hafa stjórnvöld komið að kjarasamningum þar sem tekjuhækkun þessara hópa var í forgrunni og kerfið er þannig í dag, sem við ræðum hér, fyrir breytinguna að það sem samið er um á hinum almenna launamarkaði, launaþróunin, það er sú hækkun sem greiðslur almannatrygginga hækkuðu um um hver áramót. Launaþróun hækkar oftast ekki fyrr en seinna á árinu þannig að oft fá almannatryggingarnar — hækkunin er nokkrum mánuðum fyrr, fá það um áramót þó að sumt komi ekki fyrr en í maí eða júní þannig að það er visst forskot í því. Þegar það eru kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði er náttúrlega verðbólgan tekin inn í það. En ef launaþróunin er undir þeirri verðbólgu sem er þegar þetta hækkar þá hækkar það samkvæmt verðbólgunni eða vísitölunni þannig að það er trygging sem þeir sem fá greitt úr almannatryggingum hafa sem launþegarnir hafa ekki. Almannatryggingarnar fá bæði hækkunina fyrr og hafa tryggingu með vísitölunni. Ég myndi bara segja að það væri býsna gott og sanngjarnt kerfi.

Og hvað gerist þegar verðbólgan hækkar? Af því ég fór yfir þetta með skattkerfið, það er búið að laga það og það sveiflast þá með tekjunum af því að það er búið að verðbæta það, þannig að þegar kaupmáttur þeirra sem vinna á lægstu laununum dregst saman út af hærri verðbólgu þá dregst ekki kaupmáttur almannatrygginga saman, þannig að í dag hafa þeir sem eru á almannatryggingum það umfram þá sem eru á lægstu launum. En núna getum við tekið þá sem eru á almannatryggingum með heimilisuppbót, þeir eru á hærri launum heldur en lágmarkslaun eru í landinu og hér er verið að leggja til að það forskot aukist enn þá meira, auk kaupmáttartryggingarinnar sem launþegarnir hafa ekki og laun hafa nú bara verið að hækka töluvert. Á sama tíma og laun hafa hækkað um 50% þá hefur verðbólgan hækkað um 50% líka.

Við þurfum að þora að ræða þetta hér án einhverra stóryrða og að saka hvert annað um að vera talsmenn einhverra eða vond við einhverja eða eitthvað svoleiðis. Við skulum bara ræða það hér af alvöru hvort við séum raunverulega að pissa í skóinn, hvort við séum að gera illt verra fyrir fólk á almannatryggingum, hvort við séum að draga úr trúverðugleika ríkisfjármálanna, draga úr sáttinni um það kerfi sem er hér. Stækkar ekki bara almannatryggingakerfið allt of mikið ef við drögum allan hvata? Við erum búin að vera hér í langan tíma og fjárfesta í því að ná kerfisbreytingum, bæði varðandi ellilífeyrisþegana og örorkuþegana, fá kerfisbreytingu, auka hvatann til virkni, það er það sem við erum búin að gera og fjárfesta í til þess að það séu færri inni í millifærslukerfunum. Svo er komið með þetta mál hérna sem skemmir bara allan þennan hvata, skemmir alla fjárfestinguna sem við erum búin að vera í, dregur úr hvatanum. Það verður bara orðið mun betra að vera á bótum en að vinna á lægstu launum, haldi þessi þróun áfram. Af hverju vorum við þá að fjárfesta í öllum þessum kerfisbreytingum ef við ætlum svo bara að segja allt í plati? Við verðum að taka þetta alvarlega. Ég bið hv. stjórnarþingmenn hér í salnum að íhuga þetta vel áður en við förum að þvinga þetta hér í gegn án þess að það sé einu sinni fullrætt í nefndinni. Mér skilst að nefndarálitið sé rétt um 22 línur og ekki er þar svarað áhyggjum allra okkar helstu sérfræðinga í þessum málum. Ætla stjórnarflokkarnir að bera ábyrgð á þessu? Ætla þeir að láta þetta vera sinn minnisvarða? Þó að ég sé sakaður um að tala hér gegn þeim sem eru á ellilífeyri og örorkubótum þá er það bara ábyrgð mín að benda á þetta og sagan mun dæma þetta en ég bara vona að hún þurfi þess ekki. Ég vona að við getum tekið skynsamlega ákvörðun hér. Það er mín einlæga von og það er best fyrir alla í þessu samfélagi.