almannatryggingar.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir andsvarið. Þetta er umhugsunarverð umræða og ég held að hún sé sérstaklega umhugsunarverð fyrir eldri borgara og kjósendur í Reykjanesbæ sem hlýða nú á frambjóðanda sinn koma hér og nota þennan ræðustól til að segja það að ef það verður tryggt að hækkanir þeirra verði í svipuðu hlutfalli við hækkanir annarra launamanna í landinu þá geti bara voðinn verið vís. Mér finnst þetta vera nöturleg skilaboð, herra forseti, en þau eru svona og ég er ekki sammála þeim. Og það að taka hér öllu sem heilagri staðreynd, þó að það séu einhverjar vangaveltur hjá hagfræðingum um að þetta sé ekki góð leið, það sé mögulega betra að fara einhverja aðra leið, þá er það alveg ljóst að ef þessar svörtustu spár þingmanna Sjálfstæðisflokksins rætast þá er nú kannski lítið annað að gera en að taka upp málið. En mér dettur ekki í hug, ekki eina mínútu, að þessar ýkjusögur um að allt fari hér í bál og brand gangi eftir. Og að formaður Sjálfstæðisflokksins telji þetta versta mál af öllu vondu sem ríkisstjórnin er að leggja hér fyrir þingið. Þetta mál er einfalt. Það snýst bara um það að tryggja að eldri borgarar fái hækkaðar tekjur um leið og aðrir launþegar í landinu fá hækkaðar tekjur. Menn sjá mikla hættu í þessu en við í Flokki fólksins og ríkisstjórnin erum stolt af þessu máli og ég vona svo sannarlega að Sjálfstæðisflokkurinn taki þátt af alvöru í þessari umræðu og hætti að vera með þessar ýkjusögur hér sem allir sjá í hendi sér að ganga ekki upp.