almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir sína góðu ræðu. Betra heima setið en af stað farið, það voru orð sem ég hjó eftir í hans ræðu og sem mér finnast áhugaverð í ljósi þess um hvað þetta mál fjallar um. Málið fjallar um að stöðva kjaragliðnun launa og örorkulífeyris og ellilífeyris þannig að það eru áhugaverð skilaboð. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason og margir aðrir í stjórnarandstöðunni sem hafa komið hérna upp í umræðum um þetta mál hafa haft sig mikið í frammi við að þylja upp og taka til umsagnir sem þau segja að séu allar á neikvæðan veg og af málflutningnum má eiginlega dæma að þær séu allar á neikvæðan veg. Mig langaði að koma hérna upp og spyrja hv. þingmann um hans viðbrögð eða álit í raun og veru á umsögn ÖBÍ réttindasamtaka, sem lýsa bara hreint og klárt stuðningi við áform ríkisstjórnarinnar í þessu máli og fagna þessum áformum? ÖBÍ réttindasamtök telja reyndar að þetta frumvarp gangi ekki nógu langt en þau fagna þessum áformum. Ég er áhugasamur að heyra hvað þingmaðurinn hefur um það að segja.