almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Það er einmitt það sem ég hef verið að benda á hér. Það þýðir ekki að horfa bara þröngt á tölurnar sem munar þarna. Í sumum tilfellum eru meira að segja almannatryggingagreiðslurnar hærri en lægstu laun. Allar okkar kerfisbreytingar hafa miðað að því að auka hvatann til virkni og hafa hvata til vinnu og annað slíkt. Svo er komið núna inn í málið, sem ég tel að Landssamband eldri borgara taki ekki með í reikninginn, hvernig tengingin er á milli, víxlverkunin á milli lífeyrissjóðsgreiðslna og svo almannatrygginga, þannig að ef þessi útfærsla verður farin til að bæta kjör þeirra í gegnum almannatryggingar þá getur það leitt til lækkunar annars staðar. Þá held ég að það muni heyrast eitthvað frá Landssambandi eldri borgara þegar það fer að raungerast. Enn og aftur: Við erum búin að vinna að alls konar góðum málum til að bæta hag þessa fólks, kjör þess og réttindi. Það hefur gengið vel að auka kaupmáttinn en það er enn verk að vinna. Hér er þessu stillt mjög einfalt upp, að þetta snúist bara um kjaragliðnunina en þetta hlýtur að snúast um kaupmáttinn og heildarhag fólksins. Þetta hlýtur að snúast um það. Í meðferð þessa máls hér fyrir þinginu þá fáum við umsagnir í báðar áttir og þá þurfum við að geta fengið nánari upplýsingar á nefndarfundum til að kryfja þetta til mergjar áður en við tökum ákvörðun. Það teljum við að hafi ekki verið gert og því þurfi málið nánari skoðun til þess að þetta komi ekki og bíti okkur í skottið seinna.