almannatryggingar.
Herra forseti. Ef laun hækka meira en framleiðni munu bætur almannatrygginga, sem nema um 5% af vergri landsframleiðslu, hækka meira en 2% á ári þannig að heildarútgjöldin vaxa þá meira en sem nemur framleiðnivexti og meira en stöðugleikareglan kveður á um að forminu til. Mér finnst þetta skipta máli í samhengi við spurningu hv. þingmanns. Ég sit sannarlega ekki í nefndinni sem fjallar um málið og þá hvaða breytingar hægt væri að fara í sem væru skynsamlegri en það sem hér er gert en ég leyfi mér að benda á tillögu í grein umræddra hagfræðinga um að breyta ætti frumvarpinu um almannatryggingar á þann veg að breytingar bóta séu í samræmi við almennan vöxt ríkisútgjalda og þróun viðmiðunarfjárhæða skattkerfisins sem myndi þá tryggja að stöðugleikareglunni, sem þessi ríkisstjórn er nýbúin að setja, væri framfylgt. Það myndi þá fela í sér að bætur hækkuðu að jafnaði eins mikið og samtala verðbólgu og vaxtar framleiðni vinnuafls á mann.