almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svörin. Ég velti aðeins fyrir mér aftur varðandi þessar hækkanir. Ef við tökum bara launavísitöluhækkunina, af því að ég nefndi áðan að upphæðir eru misjafnar eftir hópum. Að hækka greiðslur almannatrygginga um ákveðna prósentu, segjum 5%, skilar ekki nema 18.300 kr. en 5% hækkun á t.d. lágmarkslaunum í landinu skilar 23.804 kr. Ef við erum að tala um mismunandi upphæðir en t.d. sömu prósentu þá veldur það þessari kjaragliðnun eins og við sjáum í dag. Þess vegna er það að fylgja launavísitölu vissulega að stoppa þessa gliðnun en það þarf auðvitað síðan að bæta inn í framtíðina til að eyða bilinu.
Mig langar líka að spyrja um þetta: Eiga hópar öryrkja og ellilífeyrisþega að bera byrðar verðbólgu (Forseti hringir.) því það er alltaf talað um í sömu andrá að það að hækka greiðslur almannatrygginga muni valda verðbólgu og þess vegna eigi ekki að hækka þær of mikið? (Forseti hringir.) Eru það skilaboðin sem verið er að senda, að þessir hópar eigi að bera þessar byrðar?