157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[19:42]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapa, að upphaf dagskrá næsta þingfundar verði svohljóðandi:

1. Störf þingsins.

2. Útlendingar (afturköllun alþjóðlegrar verndar), 112. mál, lagafrumvarp dómsmálaráðherra. — 3. umræða.

Við óskum eftir því að þessi dagskrártillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf rita Sigríður Á. Andersen, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Snorri Másson, Þorgrímur Sigmundsson, Ólafur Adolfsson og Þórarinn Ingi Pétursson.

Þessi tillaga verður borin upp við upphaf þingfundar á morgun.