157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[13:32]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Eins og tilkynnt var á síðasta þingfundi hefur forseta borist dagskrártillaga, svohljóðandi:

„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapa, að upphaf dagskrár næsta þingfundar verði svohljóðandi:

1. Störf þingsins.

2. Útlendingar (afturköllun alþjóðlegrar verndar), 112. mál, lagafrumvarp dómsmálaráðherra. — 3. umræða.

Við óskum eftir því að þessi dagskrártillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf rita Sigríður Á. Andersen og fleiri. Fer nú fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.