157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[13:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hér er komin fram dagskrártillaga sem hv. þm. Sigríður Andersen og fleiri leggja fram varðandi störf þingsins. Mál er varðar afturköllun alþjóðlegrar verndar var tekið út úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd 5. desember síðastliðinn. Síðan eru liðnir 67 dagar. Málið hefur ítrekað verið aftast á dagskrá og alltaf á eftir þungum umræðumálum. Sama á við í dag. Í dag er áætlað að almannatryggingar verði ræddar áfram áður en þetta mál kemst til lokaafgreiðslu. Enn einu sinni réttum við í stjórnarandstöðunni fram hjálparhönd til hæstv. dómsmálaráðherra varðandi það að mál hæstv. ráðherra komist til lokaafgreiðslu; mál er varða útlendinga, mál um stöðu á landamærum og það að koma skikki á þessi mál öllsömul. Þó að það sé auðvitað mikið verk óunnið þá er þetta mál til bóta og þess vegna viljum við aðstoða við að koma því til lokaafgreiðslu eftir að það hefur ekki verið klárað í allan þann tíma (Forseti hringir.) sem nú blasir við. Það var ekki lítið gert úr því við lok þings í desember að stjórnarandstaðan þvældist fyrir þessu máli. (Forseti hringir.) Stjórnarandstaðan hefur allan tímann reynt að draga þetta mál í gegnum þingið og gerir hér enn eina atlöguna að því.

(Forseti (ÞSv): Ræðutími þegar gerð er grein fyrir atkvæði sínu er ein mínúta.)