dagskrártillaga.
Frú forseti. Ég sé enga ástæðu til að styðja þessa tillögu. Málið er nr. 2 á dagskránni hér á eftir almannatryggingamálinu sem rætt hefur verið hér í tvo daga. Mig langar líka aðeins, bara rétt aðeins, að færa okkur aftur í tímann inn í desembermánuð þar sem við gerðum mikla atlögu að því, þingflokksformenn, á fundum og hér í umræðu í þingsal að reyna að ná samstöðu um það að klára mál um afturköllun alþjóðlegrar verndar fyrir jólafrí. Um það náðist hins vegar ekki samkomulag, bara svo því sé haldið til haga. Það var mikill vilji til þess af hálfu ríkisstjórnarflokkanna að klára málið fyrir síðustu jól, fluttar af því fréttir við þinglok. Allt er það skjalfest þannig að þessi tillaga sem hér er uppi núna er auðvitað bara einhvers konar „skuespil“ í ljósi stöðunnar, ofur einfaldlega. Það er hægur vandi fyrir okkur að klára almannatryggingamálið hér á eftir (Forseti hringir.) og klára svo afturköllun alþjóðlegrar verndar síðar á þessum þingfundi og fara síðan í umræðu um orkumál.