157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[13:37]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég greiði atkvæði með þessari tillögu enda tel ég brýnt að þetta mál fari hér í gegnum þingið og helst í gær eins og hefði verið mögulegt ef ríkisstjórnin hefði haft áhuga á því á fyrri stigum. Það er auðvitað í raun og veru ekkert annað en grátlegt að hv. þm. Sigmar Guðmundsson láti eins og ríkisstjórnin hafi verið sérstaklega áhugasöm um að koma þessu máli í gegn fyrir jól þegar menn mæta korteri fyrir þinglok og slengja þessu á borðið. Svo vísar hv. þingmaður í fjölmiðlaumfjöllun þess efnis og þá býður manni í grun undan hvaða rótum sú fjölmiðlaumfjöllun var runnin á sínum tíma. Undarlegar fréttir ef þetta hefði verið forgangsmál ríkisstjórnar fyrir þinglok að klára þetta mál sem henni hefur verið í lófa lagið að gera allt síðasta ár. Málið hefur notið fulls stuðnings en hún velur ítrekað að setja það aftast á dagskrá eða í þannig pólitíska stöðu að málið fái ekki framgang. Ef það er forgangsröðun hæstv. ríkisstjórnar þá er það sjálfsagt, en þá er kannski betra að koma til dyranna eins og menn eru klæddir.