dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Það er áhugavert leikrit sem hér fer í gang, ákveðin sýndarmennska þar sem umræðan snýst um umbúðirnar en ekki innihaldið. Hér er því haldið fram að þetta mál hafi beðið vikum saman. Það var einmitt afgreitt úr nefnd síðastliðinn fimmtudag og svo var ekki þingfundur á föstudag. Málið var á dagskrá í gær en komst ekki að vegna þess að stjórnarandstaðan var upptekin við að tefja fyrir kjarabótum aldraðra og öryrkja. Við erum að hefja þriðja dag í umræðu um það góða mál sem ég hef væntingar til að klárist í dag. Strax að því loknu er einmitt þetta mál á dagskrá, afturköllun verndar, mál sem hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lagði fram og við stöndum öll að baki. Eftir það góða mál er komið að rammaáætlunum þar sem við erum að rjúfa kyrrstöðuna þegar kemur að virkjanagerð á Íslandi, fara aftur að afla grænnar orku á Íslandi og hefja verðmætasköpun hér á landi. Einhvern veginn telur stjórnarandstaðan mikilvægt að tefja öll þessi góðu mál. Ég heyri hins vegar að það er mikill samhljómur hér í þingsal í dag. Það er ákall eftir því að láta verkin tala og klára þessi mál og það er í okkar höndum, kæru félagar.