157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[13:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að dagskrá þessa þingfundar og reyndar síðustu þingfunda hefur komið mér verulega á óvart því að þetta mál, sem einhverjir vildu mála hér upp í einhverju pólitísku leikriti, korteri í jól, að þyrfti nauðsynlega að afgreiðast án þess að hafa verið í nokkurri samræðu, ratar dag eftir dag síðast á dagskrá. Samt er þetta stjórnarmál með eitt af lægstu númerunum á dagskránni í dag og í 3. umræðu. Hér er því verið að fara þvert á allar hefðir og venjur um það hvernig dagskránni er yfirleitt raðað upp. Það er pólitík, það er augljós pólitík hjá þessum meiri hluta. Ég veit ekki nákvæmlega af hverju en mig er farið að gruna að hæstv. ríkisstjórn hafi enga trú á þessu útlendingafrumvarpi sínu og sé kannski búin að átta sig á því að það sé bara ekki nógu gott. Einhver er ástæðan fyrir því að hér vill fólk ekki ræða þetta. Það vill einhvern veginn þrýsta minni hlutanum í að ræða ekki um önnur mikilvæg mál, til að koma þessu máli á dagskrá. Líklega vilja þau bara afgreiða þetta einhvern tímann undir nóttina svo sem fæstir taki eftir því.