dagskrártillaga.
Frú forseti. Ég er vissulega ein af þessum nýju þingmönnum hérna en ég skil ekki alveg þetta tal um leikrit því að ég held að allir sem eru heima að horfa sjái alveg í gegnum leikritið hjá stjórnarmeirihlutanum. Þetta mál, frú forseti, er sett aftast á dagskrá aftur og aftur þegar það eru stór mál á undan. Þegar dagskráin er þannig að augljóst er að hún muni klárast og liggur fyrir að ekki verði mikil umræða þá er þetta mál ekki á dagskrá. Við getum skoðað dagskrána aftur á bak, þá setjið þið þetta ekki á dagskrá. Þetta leikrit er með ólíkindum. Núna erum við að fara að ræða mál sem hv. þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins er búinn að segja að sé eitt stærsta og versta mál ríkisstjórnarinnar og augljóslega vitið þið, frú forseti, að það verður rætt mikið. Þá færið þið þetta mál aðeins framar, reyndar er grásleppan horfin. Ég er alveg hætt að botna í þessari dagskrá, frú forseti. En leikritið er augljóslega hjá meiri hlutanum.