157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

um atkvæðagreiðslu.

[13:45]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég var hér í góðri trú búinn að gefa skýrt merki og fá viðbrögð úr forsetastóli um það að eftir mér hafi verið tekið, þannig að það kom mér á óvart að ég hafi ekki fengið að gera grein fyrir afstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem starfandi þingflokksformaður hér í dag, í málinu sem var hér til afgreiðslu á undan. Það var heldur betur nauðsyn til eftir að hér hafði verið farið frjálslega með störf þingsins hér í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu og fyrir jólin. Þetta mál sem við erum að fara að ræða síðar í dag, um afturköllun verndar, er löngu komið til þingsins en stjórnarmeirihlutinn hefur ekki haft dug í sér að klára málið almennilega. Svo þegar búið var að ganga frá þinglokum með forseta þá allt í einu átti að fara að keyra það í gegn á lokaklukkutímunum. Það hefur nú aldeilis komið í ljós við þinglega meðferð að það þarf að breyta þessu máli eins og breytingartillögurnar í dag munu bera glöggt merki um. Þannig að það þurfti umræðu. Það er fyrst núna þegar þessi dagskrártillaga kom á dagskrá (Forseti hringir.) að þetta var mál nr. 2, annars hefur þetta alltaf verið síðasta mál á dagskrá, það var ekki fyrr en eftir það. Þannig að leikritið er algerlega stjórnarliða (Forseti hringir.) sem þora ekki að klára þetta mál.