157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

um atkvæðagreiðslu.

[13:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég leiði sjálfan mig fram sem vitni og get staðfest það að sessunautur minn, hv. þm. Vilhjálmur Árnason, bað vissulega um orðið undir þessum lið í tíma, um atkvæðaskýringu. Ég bað hins vegar allt of seint um orðið, hafði gleymt því að fram færi atkvæðaskýring en ekki um atkvæðagreiðsluna og það kann að hafa eitthvað ruglað þessa mynd. En ég hefði nú talið æskilegt að leyfa hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni að njóta vafans í ljósi þess hvers konar umræða var hér og hvers konar mál og ég hefði talið framlag hans til bóta frekar en hitt. Ég geri mér grein fyrir því að það er erfitt fyrir hæstv. forseta að hafa yfirsýn yfir allan salinn öllum stundum. En í ljósi þess að hv. þingmaður gaf skýrt merki, þótt það kunni síðan eitthvað að hafa skolast til eða gleymst, þá hefði mér þótt rétt að taka orð hv. þingmanns trúanleg í þessu tilviki.