um atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég vil bara fá að koma hingað upp í ljósi orða tveggja hv. þingmanna sem hafa verið að tala um að þessu máli, afturköllun verndar, hafi ekkert verið hreyft í aðdraganda jóla. Eins og hæstv. utanríkisráðherra fór yfir hér áðan var þetta nefnt oftar en einu sinni á fundum formanna flokkanna. Það vita það allir þingflokksformenn, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, allir þingflokksformenn, að þetta var ítrekað rætt í aðdraganda þess að við kláruðum fyrir jólin. Samkomulagið sem náðist um þinglokin snerist um dagsetningarmál. Það var líka umræða hér í þingsal um að það myndi ekki útiloka önnur mál, að þau yrðu kláruð líka. Menn verða að fara hér rétt með. Það er algerlega hafið yfir allan vafa. Formenn flokkanna ræddu það sín á milli hvort hægt væri að klára málið fyrir jólin. Þessu var margítrekað hreyft á fundum þingflokksformanna. Að halda því síðan fram að ríkisstjórnarflokkarnir hafi staðið í vegi fyrir því — (Forseti hringir.) það er algerlega með ólíkindum að hlusta á þetta.