um atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég vil koma hingað upp og hrósa hæstv. forseta fyrir góða fundarstjórn og vil grípa til varna fyrir hæstv. forseta. Sá sem hér stendur gegnir vissulega embætti 2. varaforseta Alþingis og situr gjarnan í þessum stól þegar fram fara atkvæðagreiðslur. Það er mjög oft sem það gerist að margir gefa merki á sama tíma um að vilja taka til máls og gera grein fyrir atkvæði sínu; banka í borðið á sama tíma og tíu aðrir, veifa aðeins hendinni og gera bara ráð fyrir því að eftir þeim hafi verið tekið. Ég myndi leggja til við alla hv. þingmenn að halda henni á lofti þar til augljóslega hefur verið gefið merki um að nafnið hafi verið ritað niður á mælendaskrá. Ég vísa öllum ummælum um að hér hafi einhverjir þöggunartilburðir átt sér stað algjörlega til föðurhúsanna.