um atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Mig langaði að koma hingað upp eftir orð hv. þm. Sigmars Guðmundssonar. Við erum búin að tala um að þetta sé augljóslega leikrit og við virðumst ekki sammála um það. Hann kom inn á það, frú forseti, að við hefðum staðið í vegi fyrir þessu máli. Ég er auðvitað ekki sammála meiri hlutanum í því. Þá langar mig að spyrja, frú forseti: Hvernig stendur á því að hv. þingmenn í meiri hlutanum höfnuðu þessu allir? Hvernig stendur á því að forseti setur málið alltaf aftast? Það er alveg augljóst hverjir staðið hafa í vegi fyrir því að þetta mál komist á dagskrá í dag. Það eru hv. þingmenn meiri hlutans sem greiddu atkvæði hér áðan gegn því að þetta mál færi fremst á dagskrá. Það er því auðvitað tómt tal að tala um að minni hlutinn standi í vegi fyrir þessu.