157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

um atkvæðagreiðslu.

[13:57]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér eru mikil gífuryrði viðhöfð og mér þykir það miður. Ég er jú einn af þeim formönnum sem áttu hér fundi í aðdraganda jólahlés með öðrum formönnum stjórnmálaflokka hér á Alþingi. Það er beinlínis rangt að halda því hér fram að þetta mál hafi ítrekað verið borið upp á fundum með ósk um að það yrði klárað. Ef það var kappsmál þessarar ríkisstjórnar að klára þetta mál, sem var sent til nefndar 23. september og var sent úr nefnd 5. desember, af hverju í ósköpunum setti þá ríkisstjórnin ekki málið á dagskrá? Þetta er sami söngur og sami væll og var hér í sumar þegar sami ráðherra og kom upp í pontu áðan tilkynnti það á síðasta degi þings, ávarpaði strandveiðisjómenn, og sagði að það hefði verið stjórnarandstöðunni að kenna (Forseti hringir.) að það frumvarp hefði ekki farið í gegn þegar raunin var að ríkisstjórnin setti málið aldrei á dagskrá. Ef ríkisstjórnin vill klára þetta mál um afturköllun verndar (Forseti hringir.) þá hefðum við fyrir löngu getað verið búin að gera það, fyrir lifandis löngu, (Forseti hringir.) en að ætla að koma og taka alla 2. umræðu um málið á nokkrum klukkustundum fyrir jólahlé er rugl (Forseti hringir.) og við skulum hafa staðreyndir á hreinu.