157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

um atkvæðagreiðslu.

[14:00]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að koma hér með tillögu til forseta í ljósi þess að þetta er ekki í fyrsta skipti sem hæstv. utanríkisráðherra kemur hér upp og er með eftiráskýringar á því hvað fer fram á fundum formanna flokkanna. Ég held að það væri kannski bara vel við hæfi og ég vil beina því til forseta þingsins að næst þegar formenn flokkanna hittast sé bara bein textalýsing á textavarpinu frá því hvað fer fram á fundunum og þá þurfi ekki að vera neinar eftiráskýringar á því hvernig fundirnir eru, af því að svo sannarlega hefur það komið margítrekað í ljós að hæstv. utanríkisráðherra fer ekki með rétt mál af því sem fer fram á þessum fundum.