157. löggjafarþing — 69. fundur, 10. feb. 2026.
um atkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hér með tvær tillögur til þess að þingstörfin gætu almennt gengið betur fyrir sig. Það er að stjórnarliðar myndu láta efndir fylgja orðum, það væri ágætistilbreyting, og að nefndastarfið og sú vinna sem á að fara fram í nefndunum sé virt að meiru þannig að málin komi betur undirbúin og betur unnin og í meiri sátt. Þá ættu þingstörfin að geta bara gengið nokkuð greiðlega fyrir sig eins og oft hefur sýnt sig.