Störf þingsins.
Forseti. Það er í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga mikilvægt að minna á að það er sannarlega heilbrigðismerki fyrir íslenska stjórnmálaumræðu að ákall sé eftir því að leikskólastigið okkar haldi áfram að vera öflugt og aðgengilegt. Á sama tíma er rétt að horfast alvarlega í augu við að við getum ekki haldið áfram á þeirri braut sem þróunin ber merki um og skapast hefur um allt land. Leikskólavandinn er síður en svo bundinn við höfuðborgina. Þetta eru áskoranir sem hafa skapast samhliða miklum samfélagsbreytingum og þeim miklu og eðlilegu kröfum sem ungt fólk á að geta gert til þess að stunda sína vinnu, byggja upp starfsframa og lifa því lífi sem það dreymir um að gera.
Ég ætla líka að draga fram þá staðreynd að ég get ekki hugsað mér og ekki sætt mig við að við breytum kerfinu okkar í þær áttir að það auki enn á forskot karla á vinnumarkaði, forskot sem sannarlega er enn til staðar og verður ekki útrýmt nema raunverulegar aðgerðir verði að veruleika. Fyrir konur sem skattgreiðendur og vinnuafl í þessu landi er ekkert sanngirnis- eða frelsismál að sameiginlegir sjóðir okkar verði nýttir til að skutla jafnréttisbaráttunni áratugi aftur í tímann með því að gefa körlum enn frekara forskot. Þetta þurfi því að þora að segja.
Hér er ég einnig að tala um ójafna skiptingu fæðingarorlofs sem margir tala fyrir að þurfi að lengja enn frekar án þess að því sé nokkurn tímann svarað hvernig konum verði tryggðar jafnar ævitekjur á við karla. Við verðum líka að tryggja að leikskóladagurinn endurspegli raunverulegan vinnudag fólks. (Forseti hringir.) Við berum öll sameiginlega ábyrgð og þessi ábyrgðarhlutverk verðum við að skerpa á milli okkar ríkis og sveitarfélaga.