Störf þingsins.
Frú forseti. Er ríkisstjórnin á réttri leið í efnahagsmálum? Þetta er spurning sem margir keppast við að svara þessa dagana og ekki síst við hér á hinu háa Alþingi. Fyrir helgi fengum við erlendis frá nokkuð góðan vísi að svari þegar alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A plús með stöðugum horfum. Og, frú forseti, þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta er afleiðing af stefnu ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins sem hefur valið ábyrgð fram yfir popúlisma í ríkisfjármálum. Þar fer Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra Viðreisnar, fremst í fylkingu. Í greinargerð með ákvörðun Fitch segir, með leyfi forseta:
„Hækkun lánshæfismatsins endurspeglar styrk opinberra fjármála og lækkandi skuldahlutfall sem byggir á sterkri pólitískri skuldbindingu um festu og aðhald í ríkisfjármálum og áform um að ljúka hallarekstri ríkissjóðs.“
Skýrara gæti það varla verið. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær heyrðum við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson gera einhvers konar tilraun til að eigna fyrri ríkisstjórn þetta. Mér þykir þetta orðið hálfbroslegt, frú forseti, en málflutningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er hálfpartinn farinn að minna á guð Gamla testamentisins, allt gott er þeim að þakka og fyrri ríkisstjórn en það sem miður fer er öðrum að kenna.
Eitt af því sem Fitch nefnir sérstaklega í greinargerð sinni er stöðugleikareglan sem takmarkar raunvöxt útgjalda. Við munum öll hvernig minni hlutinn talaði þegar stöðugleikareglan var hér í þinglegri meðferð. Og hvað gerðu Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur þegar hún var endanlega samþykkt? Þau voru á rauða takkanum, frú forseti. Það var þeirra framlag til þessarar bættu lánshæfiseinkunnar. Fitch nefnir jafnframt markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög árið 2027 en eins og við munum þá ætlaði seinasta ríkisstjórn ekki að skila hallalausum fjárlögum fyrr en árið 2028. Uppfært lánshæfismat Fitch er ekki bara góð einkunn fyrir íslenskt hagkerfi. Þetta eru meðmæli með stefnu ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi. Við erum á réttri leið og við ætlum að halda kúrs.