Störf þingsins.
Frú forseti. Áfram skal haldið af hálfu ríkisstjórnar Íslands að gefa landsbyggðinni langt nef. Það er ekki aðeins mál eins og kílómetragjaldið eða veiðigjaldið sem nú þegar eru farin að bitna á landsbyggðinni sem verður hluti af þeirri vöru sem þessi ríkisstjórn ætlar að afhenda íslenskri landsbyggð. Eða eigum við að taka sem dæmi þá sýslumenn sem núna verða fluttir af landsbyggðinni? Það er því í anda þessa alls sem mætti kannski benda á að dómsmálaráðherra skipaði vinnuhóp og lét fara fyrir þeim vinnuhóp prófessor og reyndar þekktan álitsgjafa hvers skoðanir voru mjög vel þekktar á því viðfangsefni sem átti að fjalla um, sem var jöfnun á vægi atkvæða. En nú eru allir hissa á að niðurstaðan skuli vera í takt við þær skoðanir sem áðurnefndur prófessor hafði margítrekað lýst því yfir í fjölmiðlum að hann hefði. Dæmi eru nefnd um að þetta sé ekki með þessum hætti í öðrum löndum í kringum okkur sem við gjarnan berum okkur saman við. En, frú forseti, það eru ekki mörg lönd sem eru þannig landfræðilega sett að þau séu samanburðarhæf við þá stöðu sem uppi er á Íslandi. Það er helst Noregur enda eru reglurnar líkastar þeim sem eru hér. Þó er um að ræða aðeins 20–25% atkvæðisbærra manna á svokölluðu Stór-Óslóarsvæði. En á Íslandi, frú forseti, er þetta hlutfall á milli 80–85%. Þetta mál er tilraun til að endanlega knésetja landsbyggðina.