Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mér er efst í huga það sem hefur verið talað um í töluverðan tíma, þ.e. annars vegar sérhagsmunir og hins vegar almannahagsmunir. Við sáum hér í umræðunni í gær þegar sérhagsmunahópar voru að berjast á móti almannatryggingum fyrir fullorðið fólk og öryrkja. Það er ömurlegt að hlusta á þessa — maður ætti nánast að kalla þetta bara grenjuskjóður sem eru í stjórnarandstöðunni. Ég vil minna á það að hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir var í frábærum þætti í gær á Samstöðunni hjá Birni Þorlákssyni og var að tala um það að 100–120 milljarðar væru raunverulega ofteknir af fólki í vexti og þjónustugjöld. Þetta er mjög alvarlegt. Flokkur fólksins hefur viljað að a.m.k. einn banki, þ.e. Landsbankinn, sem er í eign ríkisins, verði gerður að samfélagsbanka. Sérhagsmunir og heildarhagsmunir eru auðvitað það sem við þurfum að passa upp á. En það er ein stofnun í þjóðfélaginu sem hefur veruleg áhrif á afkomu þjóðarinnar, tekjur og gjaldeyrisöflun og það er Hafrannsóknastofnun Íslands. Þar eru sérhagsmunaöfl að stjórna ferðinni meira og minna, bæði hvað varðar rannsóknir og ráðgjöf.