Störf þingsins.
Frú forseti. Flækjustig hins opinbera á sér ýmsar birtingarmyndir. Þegar viðeigandi heilbrigðisþjónusta er ekki til staðar á Íslandi er hægt að sækja um að fara erlendis til að leita sér lækninga og fá þjónustuna endurgreidda frá Sjúkratryggingum. Fíknimeðferðir eru þarna undir en við höfum heyrt af fjölskyldum sem hafa farið með börn sín til að mynda alla leið til Suður-Afríku því að úrræðin voru ekki til staðar hér á landi. Þeim er hins vegar synjað um endurgreiðslu þrátt fyrir skýra endurgreiðsluheimild. Af hverju? Jú, skilyrðin eru að viðeigandi úrræði séu innan EES eða Bandaríkjanna og að yfirvöld hér heima þurfi að vera búin að samþykkja úrræðið sem gagnrýnt meðferðarúrræði. Gott og vel, það er þó möguleiki þótt takmörk séu á vali úrræða. Skiljanlegt er að hafa skilyrði en stundum þarf eðlilegan sveigjanleika. Ég held að ekki hafi farið fram hjá neinum það ástand sem hefur verið uppi þegar kemur að fjölþættum vanda barna og sérstaklega drengja og því úrræðaleysi sem starfsmenn sem vinna í kerfinu alla daga standa frammi fyrir þegar þeir reyna að hjálpa sínum skjólstæðingum. Þessir aðilar þurfa að vera eins og sölumenn, að selja að sinn skjólstæðingur sé verr settur en aðrir og eigi að komast í næsta lausa meðferðarpláss. Mikilvægi þess að grípa snemma inn í hjá börnum sem glíma við fíknivanda verður seint nægilega áréttað. Af hverju geta starfsmenn sem vinna í kerfinu ekki bent skjólstæðingum sínum á meðferðarúrræði erlendis þegar úrræði er ekki í boði hér heima? Jú, kannski vegna þess að yfirvöld hér heima hafa ekki samþykkt neitt úrræði, ekkert erlent meðferðarúrræði, sem gagnrýnt úrræði, en það er skilyrði fyrir að hægt sé að sækja um endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum; sem sagt ómöguleiki. Þetta er flækjustig kerfisins í hnotskurn, frú forseti.