Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag gefst mér tækifæri að tala til hv. þingmanna hér á Alþingi Íslendinga. Ég vil beina sjónum að einum af þeim málaflokkum sem hefur gríðarlega samfélagslega þýðingu en fær þó ekki þá athygli sem hann á skilið. Þaðeru íþróttir, hreyfing og lýðheilsa þjóðarinnar. Sjálf var ég í forsvari fyrir eitt stærsta íþróttasamband landsins, Golfsamband Íslands. Þegar við rýnum í fjárlög ríkisstjórnar blasir við veruleiki sem er ekki boðlegur ef við ætlum að taka okkur alvarlega í þessum málaflokki. Það er talað hátt um mikilvægi hreyfingar, lýðheilsu og forvarna en forgangsröðunin endurspeglar ekki þá orðræðu.
Frú forseti. Það er ekki spurning um að eyða meira, þetta er spurning um forgangsröðun. Íþróttahreyfingin er einn öflugasti samfélagslegi innviður sem við eigum. Hún byggir á sjálfboðaliðum, hún byggir upp börn og ungmenni og í sífellt meira mæli eldri borgara. Hún styrkir geðheilsu, seinkar því að fólk fari inn á þjónustustofnanir eða jafnvel heldur þeim heima þar til yfir lýkur. Íþróttir spara heilbrigðiskerfinu ómældar fjárhæðir. Fjárveitingar til þessa málaflokks ættu að vera gagnsæjar og byggja á langtímamiðuðum forsendum en sérsambönd ÍSÍ hafa hins vegar alveg ítrekað bent á að fjármögnun íþrótta sé ósamræmd, ómarkviss og ótrygg. Aðstöðuskortur er þannig orðinn að kerfislægu vandamáli hérlendis og margar íþróttagreinar standast ekki lengur alþjóðleg viðmið í keppnishaldi. Ég kalla því eftir því að hæstv. ríkisstjórn endurskoði eigin forgangsröðun. Íþróttir eru ekki aukaatriði heldur lykilþáttur í sjálfbæru, heilbrigðu og samkeppnishæfu samfélagi. Þær eru fjárfesting í æsku og framtíð Íslands.