Staða barnafjölskyldna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir að efna til þessarar mikilvægu umræðu og sömuleiðis þakka ég hæstv. ráðherra fyrir að vera hér í dag og ræða þetta mikilvæga mál. Það er margt hægt að ræða í samhengi við stöðu barnafjölskyldna og stuðning við barnafjölskyldur, en ég held að við vitum öll að við erum að tala um áhrif eða verðbólgu. Við erum að tala um áhrif þess hversu stór húsnæðisliðurinn er orðinn fyrir venjulegt fólk, sem eðlilega bitnar á öðrum kostnaðarliðum; hversu mikið foreldrar geta verið að styðja við börnin sín o.s.frv. Síðan er auðvitað málum háttað þannig að allir aðrir kostnaðarliðir, sama hvort það er matarkarfan, tómstundir eða annað, hafa verið að hækka.
Mig langar sérstaklega til að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur komið til greina að skoða tímabundnar aðgerðir til að reyna að ná tökum á verðbólgunni, eins og t.d. að lækka matarskatt? Svíar hafa verið að horfa á þá leið tímabundið til að slá á verðbólguna og til að létta undir með barnafjölskyldum. Er þetta eitthvað sem hæstv. ráðherra telur koma til greina í okkar samfélagi til að liðka til?
Einnig langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra í sambandi við tómstundir efnaminni barna. Ég spyr vegna þess að ég átti samtal við fjölskyldu sem kom hingað erlendis frá og ræddi það sérstaklega hversu flókið það væri að leyfa börnum sínum að vera í tómstundum, sem á sama tíma er kannski besta leiðin varðandi inngildingu, varðandi tungumál og annað. Auðvitað þekkir hæstv. ráðherra að mismunandi sveitarfélög eru með tómstundastyrki og það er ýmis stuðningur í boði. (Forseti hringir.) Er þetta eitthvað sem hæstv. ráðherra telur almennt fyrir efnaminni fjölskyldur, að við eigum að grípa inn í með (Forseti hringir.) til þess að jafna tækifæri barna?