157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[15:08]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur fyrir góðar umræður hér í þingsal um þetta mikilvæga málefni og langar til að taka undir sjónarmið sem hafa komið hér fram varðandi fæðingarorlof og mikilvægi þess að horfa á lengingu þess, horfa á það í samhengi við áskoranir er varða leikskólastigið því að eitt af því sem er að sliga unga foreldra er kvíði fyrir því hvernig eigi að púsla hlutum saman. Það kemur miklu verr niður á þeim sem eiga lítið bakland og þarna er því raunverulegur aðstöðumunur. Hefði ég áhuga á að heyra hvernig hæstv. ráðherra er að beita sér í þessu samhengi.

Mig langar hér aðeins í mínu seinna innslagi að koma inn á ofbeldi sem við erum að sjá og tengist börnum. Mig langar að heyra frá hæstv. ráðherra hvernig ríkisstjórnin hyggst og er að beita sér í þeim efnum. Árið 2023 voru tilkynningar um 15% í aldurshópnum 13–15 ára og þar af tengdust 4% kynferðisofbeldi. Ég hef fylgst með góðu starfi almannaheillasamtaka líkt og Barnaheilla sem hafa tekið dálítið utan um fræðslu og annað sem þessu tengist. Mig langar hins vegar til að heyra frá hæstv. ráðherra, hvað þessi mál varðar sérstaklega, hvernig ríkisstjórnin er að stíga inn í þau. Það eru mörg önnur mál sem ég veit að hvíla á fólki hér í þessum þingsal. Ég gæti nefnt mál sem tengist flestum fjölskyldum á Íslandi, fíkniefnavanda ungmenna. Ég gæti haldið áfram að tala um alvarleg mál sem hafa t.d. komið upp að undanförnu og tengjast stuðningi við fósturbörn og svo mætti lengi telja. Ég hlakka til að heyra viðbrögð ráðherra við þessu.