Staða barnafjölskyldna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að við séum að ræða fjölskylduna og velferð hennar í sérstakri umræðu hér í dag. Að mínu mati mættum við ræða fjölskyldumálin oftar hér í þessum þingsal.
Við erum nokkur hér, hv. þingmenn, sem erum í þessu bixi að ala upp börn samhliða þingstörfum og við sem erum á þessu aldursbili eigum væntanlega mörg hver marga vini sem lýsa þessum veruleika fjölskyldna á Íslandi í dag. Þegar ég tala við mína vinahópa, þá sjaldan sem ég næ að hitta vinkonur mínar, er maður spenntur að hitta þær í von um að tala um eitthvað skemmtilegt og hressandi. Yfirleitt förum við samt einhvern veginn alltaf að tala um þetta skipulag, þessa þeytivindu og hvernig við erum einhvern veginn flæktar inn í þessa tilveru, hvernig við erum að brúa bilið milli fæðingarorlof og leikskóla og umönnunarbyrðina. Við erum að tala um vaxtabyrði, hvernig það er að greiða af námslánum og lánum o.s.frv. Svo vöknum við upp eftir tveggja tíma sjaldgæfan hitting og hugsum að við hefðum kannski átt að tala aðeins betur um hvernig okkur líður og hvernig gengur.
Einhvern veginn er þetta veruleiki ungs fólks í dag, að við erum svolítið föst í þessari þeytivindu. Tilfinning mín er sú að klukkan sé alltaf tíu um kvöld og ég að brjóta saman sokka. Ég held að við þurfum einhvern veginn að tryggja að samfélagsgerðin okkar taki betur utan um fjölskyldufólk, alveg þvert yfir litrófið. Ég gæti auðvitað endurtekið margt af því sem hefur komið fram hér. Hér er það hlutverk þess sem kemur síðastur að það er yfirleitt búið að nefna svona flesta hluti sem um ræðir. Ég tek því undir með hv. þingmönnum sem hafa farið um víðan völl. Við þurfum að horfa til skattbyrðarinnar og til þess hvernig við tryggjum stöðugleika í efnahagsmálum til lengri tíma þannig að við séum ekki stöðugt í þessari þeytivindu, að borga af höfuðstóli lána sem aldrei lækka. Þar held ég að við þurfum að horfa til þess að við höfum hér á Íslandi í sirka 100 ára hagsögu okkar upplifað tvö stutt fimm ára stöðugleikatímabil. (Forseti hringir.) 90 árum hefur ekki verið fylgt eftir með stöðugleika og ég held að við þurfum að fara að huga að rótum vandans.