157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:26]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar um þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, afturköllun alþjóðlegrar verndar eins og það er kallað. Ég vil í upphafi þakka ágætum nefndarmönnum í allsherjar- og menntamálanefnd fyrir gott samstarf í þessu máli eins og öllum öðrum og þá kannski sérstaklega framsögumanni nefndarinnar, Grími Grímssyni, fyrir gott og faglegt samstarf. Mál þetta er þeirrar gerðar að um það hefur ríkt að mestu leyti samhugur í nefndinni, bæði um mikilvægi þess og efni. Það hefur auðvitað mótað vinnuna í nefndinni að miklu leyti.

Frumvarpið, þó að það sé kannski ekki langt, er nú nokkuð efnismikið. Á fundi nefndarinnar var gestkvæmt og það var áhugavert að hlýða á sjónarmið þeirra aðila sem skiluðu umsögnum til nefndarinnar. Efnislega eru kannski fjórir þættir í frumvarpinu sem skipta mestu máli. Það eru útilokunarástæður alþjóðlegrar verndar, ákvæði um afturköllun alþjóðlegrar verndar, brottfall svokallaðrar 18 mánaða reglu og svo eru þessi efnislegu ákvæði um umborna dvöl. Eins og ég hef nefnt hér fyrr í ræðu minni hefur ríkt almennur einhugur í nefndinni að mestu leyti hvað þetta varðar. Þó vil ég kannski minnast á þessa 18 mánaða reglu. Hún var auðvitað sett inn af ástæðu. Það skrýtna við þessi hælismál á Íslandi er að stærsti tilkostnaður samfélagsins af þessum málum fer einfaldlega í það að halda uppi fólki sem er að bíða eftir nei-inu. Það er málsmeðferðartíminn sjálfur sem er stærsta vandamálið. Þarna er auðvitað þetta jafnvægi, að gæta að réttindum þessa hóps sem á auðvitað tilkall til þess að fá faglega afgreiðslu. Þetta eru hælisleitendur, fólk sem er að leita eftir hæli og athugun stjórnvalda lýtur þá að því að meta hvort það eigi að flokka þau sem flóttamenn. Þetta eru auðvitað alvörumál.

Öllu má þó ofgera og það hefur verið kerfinu til trafala, þessu fólki og fjölskyldum þeirra sem er haldið hér á landi í von eða ótta um afgreiðslu málsins, oft og tíðum í marga mánuði, jafnvel fleiri ár. Það er auðvitað verkefni bæði okkar hér sem setjum lögin en líka þeirra sem vinna að málunum, hvort heldur sem er hjá Útlendingastofnun, sem við í allsherjar- og menntamálanefnd heimsóttum í morgun, eða kærunefnd útlendingamála, að gæta að málsmeðferðartímanum. Ég man ekki hvenær þessi 18 mánaða regla var sett, ætli það hafi ekki verið fyrir kannski tíu árum eða svo, sem gengur sem sagt út á það að þeir sem fá ekki úrlausn mála sinna innan þess tíma eiga þá rétt á dvalarleyfi. Hér er auðvitað verið að gefast upp á því verkefni. Það er verið að kasta inn handklæðinu. Gott og vel. Mér finnst allt í lagi að horfast bara í augu við það. Þessi regla var auðvitað sett — ég ætla ekkert endilega að vera með einhverja palladóma um hvort hún hafi verið skynsamleg eða ekki, en hún var samt sett og átti að vera einhvers konar neyðarventill, jafnvel svipa á stjórnvöldum, að afgreiða þessi mál innan þessara 18 mánaða, einmitt af virðingu við hælisleitendurna sjálfa eða þá fjármuni sem fara í málaflokkinn í millitíðinni, á meðan fólk er að bíða eftir nei-inu, eins og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins komst einu sinni að orði. Mér finnst allt í lagi að viðurkenna þetta.

Að lokum er fjórði þátturinn sem varðar umborna dvöl og er auðvitað ætlað að mæta mjög erfiðri stöðu sem getur komið upp og við fjölluðum mikið um í nefndinni. Auðvitað getum við ekki verið í þeirri stöðu að senda fólk út í rauðan dauðann, það gengur gegn skuldbindingum okkar, alþjóðaskuldbindingum og auðvitað bara íslenskum lögum. Þannig að hér er kominn svona einhver mekanismi sem er ætlað að tryggja í það minnsta einhver svona lágmarksmannréttindi.

Efnislega var kannski svona kjarnaatriði þessa frumvarps, eins og það var lagt upp af hálfu hæstv. dómsmálaráðherra — og það ríkir held ég einhugur um það, hér í þinginu í það minnsta, og menn hafa talað fyrir þessum réttarbótum — að samræma íslensk lög því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum, annars staðar í Evrópu. Ísland er þá eina landið á Norðurlöndunum sem hefur ekki haft þessa reglu, skýr mörk um að einstaklingar sem brjóta af sér með alvarlegum hætti eru útilokaðir frá alþjóðlegri vernd hér á landi, ef þeir verða uppvísir að slíkum brotum hér á landi, brjóta gegn samfélagssáttmála okkar með alvarlegum hætti, verði þeim gert að fara. Þetta hefur svo sem ekki reynst neitt sérstaklega umdeilt, í það minnsta hér í þingsal. Það eru ekki almenn mannréttindi útlendinga að fá að koma hingað til lands og fremja afbrot. Við því viljum við stemma stigu.

Það var mælt fyrir málinu í september. Það fékk ítarlega skoðun síðastliðið haust og var tekið út úr allsherjar- og menntamálanefnd 5. desember síðastliðinn. Það var hins vegar ekki sett á dagskrá hér í þinginu fyrr en um miðjan janúar síðastliðinn þrátt fyrir digurbarkaleg ummæli einstakra ráðherra um annað. Í 2. umræðu þingsins kom upp sú breytingartillaga sem er þá í raun og veru verið að mæla aftur fyrir. Hún miðar að því að skerpa á efnisatriðum frumvarpsins. Þar er kannski fyrst að nefna þetta atriði, að skylt verði að afturkalla alþjóðlega vernd, með leyfi forseta:

„… ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.“

Þarna er sem sagt verið að skerpa á því að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að afturkalla alþjóðlega vernd við þessar aðstæður.

Að liðinni 2. umræðu málsins var því vísað aftur til allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar þar. Ég skynjaði það svona frekar að í nefndinni gæti myndast samhljómur um að styðja þessa breytingartillögu, sem er eðlileg og sjálfsögð, og það kom mér því á óvart að svo skyldi ekki vera. Ekki kann ég skýringar á því og kannski koma þær fram hér síðar í þessum umræðum, hverju það sætir, af hverju meiri hlutanum hugnaðist það ekki að mæla fyrir um þessa skyldu heldur vill eftirláta stjórnvöldum að meta þetta hverju sinni, veita stjórnvöldum heimild til að afturkalla verndina, líka þegar útlendingur er hættulegur öryggi ríkisins, það þurfi að draga línuna þar, að stjórnvöldum sé það heimilt.

Ég verð að segja, hafandi setið hér á þingi frá síðastliðnu hausti, að mér finnst það löstur á löggjafarstarfinu að verkefnið í huga margra sem hér starfa er að framselja vald til stofnana og ráðuneyta. Það er meira og minna það sem við erum að gera hér í þessum þingsal, að lögfesta reglugerðarheimildir þar sem ráðherrar, sérfræðingar í ráðuneytunum eða einstaka stofnunum, fá sem sagt svigrúm til þess að útfæra nánar hvaða reglur gilda. Það er svo sem þekkt í dómaframkvæmd að slíkt framsal á löggjafarvaldi getur gengið gegn stjórnarskránni, til að mynda ef það felur í sér inngrip í mannréttindi borgaranna og annað slíkt. Ég kann ekki skýringar á því af hverju meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar hugnaðist ekki að mæla fyrir um það með skýrum hætti að skylt sé að afturkalla alþjóðlega vernd í þessum alvarlegu tilfellum, þegar einstaklingar sem eru hættulegir öryggi ríkisins hafa hlotið endanlegan dóm fyrir. Hvers vegna í ósköpunum þarf að stoppa við valdheimildina sjálfa og eftirláta stjórnvöldum þetta?

Ég kann svo sem ekki skýringu á þessu vegna þess að heimild og skylda eru auðvitað gerólíkir hlutir og við höfum hér auðvitað fulla heimild sem löggjafarsamkoma til að setja slíkar reglur. Í breytingartillögunni eru líka tekin út sérstök brot sem eru álitin mjög alvarleg. Bara svona til að setja það allt saman í samhengi þá mælum við fyrir því í almennum hegningarlögum að tiltekin hegðun sé refsiverð. Það er ekki mat stjórnvalda eða saksóknara að komast að niðurstöðu um hvort hún sé það ekki.

En hér erum við í þessum 1. minni hluta að mæla fyrir því að það verði skýrt. Ég veit ekki hvernig meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar villtist af leið, vegna þess að í frumvarpinu sjálfu, upphaflega frumvarpinu eins og það var lagt fyrir þing, er því haldið fram að ákvæðið taki mið af löggjöf annars staðar á Norðurlöndum og svo er vísað í nýsamþykkta löggjöf Evrópusambandsins um verndarmál sem mun taka gildi í júní 2026. Þar segir, með leyfi forseta: „Skv. d- og e-lið 14. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1347 verða ríki nú skuldbundin til að afturkalla alþjóðlega vernd þegar málefnalegar ástæður eru til að líta svo á …“

Svona er þetta orðað í frumvarpinu sjálfu. Maður hefði lengi talið hér í þessum sal að það væri áhugi hjá meiri hlutanum á að líta til þess sem gerist hjá Evrópusambandinu en þegar kemur að útlendingamálunum, þegar kemur að þessu atriði sem við erum hér að ræða um, þá vill ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar ganga skemur, staldra við það að mæla fyrir um heimildarákvæði en ekki skyldu, eins og kemur fram í reglugerðinni. Þetta er bara kýrskýrt ef maður skoðar texta reglugerðarinnar sjálfrar. Í 14. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1347 segir á ensku, með leyfi forseta: „Withdrawal of refugees status. 1. The determining authority shall withdraw the refugee status …“. Svo er vitnað í nánar tilgreinda töluliði, þar á meðal að viðkomandi hafi verið dæmdur fyrir alvarlegt afbrot. Svo er því haldið fram í frumvarpinu, eins og ég nefndi hér áðan, að við séum einhvern veginn að færa íslenskar reglur til samræmis við það sem tíðkast á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu. Það er bara ekki rétt.

Ég hef nú farið yfir þessi helstu efnisatriði breytingartillögunnar og rétt stiklað á stóru hvað varðar nefndarálit 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Þar kemur einmitt fram að það er okkar skoðun að frumvarpið eins og það lítur út eftir 2. umræðu gangi ekki nægilega langt í að vernda íslenskt samfélag fyrir aðilum sem hafa brotið svo svívirðilega gegn þeim reglum sem við höfum sett okkur. Í því sambandi er mælt fyrir um þessa skyldu, þess getið að Ísland sé aðili að Schengen-samstarfinu og þurfi þess vegna að uppfylla ýmis skilyrði. Þetta er ekki einkamál okkar, reglur um alþjóðlega vernd, því þeir sem hafa fengið alþjóðlega vernd hér á landi geta ferðast hvert sem er innan Evrópusambandsins. Ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að Evrópusambandið hefur sagt: Nei, við getum ekki haft þetta heimildarákvæði, við verðum að sjá til þess að hverju einasta ríki Evrópusambandsins sé skylt að afturkalla alþjóðlega vernd í þessum aðstæðum, því það má ekki vera undir einstaka ríki komið að heimila dvöl svo hættulegra einstaklinga.

Aftur kann ég ekki skýringar á þessu. Það er auðvitað mikilvægt fyrir fullvalda ríki að geta varið borgarana og samfélagið fyrir aðsteðjandi ógnum. Það er auðvitað frumforsenda ríkisvaldsins. Það er réttlætingarástæðan sem við öll ættum að vera sammála um, að gæta að almannaöryggi og allsherjarreglu. Hluti af því er að geta afturkallað vernd ef einstaklingur brýtur alvarlega gegn því samfélagi sem hann hefur hlotið skjól í. Það eru ekki, eins og ég hef áður sagt, almenn mannréttindi útlendinga að fá að koma hingað og fremja afbrot. Þannig að hér erum við að mæla fyrir því að í alvarlegustu brotunum hvíli skylda á stjórnvöldum til að afturkalla alþjóðlega vernd en það væri heimilt að svipta menn alþjóðlegri vernd hafi þeir hlotið endanlegan dóm fyrir kynferðisbrot þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi ekki skemur en eitt ár; og líkamsmeiðingar þar sem refsingin sem við brotinu liggur er fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt. Sama á við um alvarleg brot gegn 232 og 233 gr.

Ég hef svo sem farið yfir það helsta sem ég vildi geta um í þessu samhengi. Ég vil bara enda á því að þakka aftur nefndarmönnum fyrir ágætt samstarf. Mér þykir leitt að ekki hafi gefist tækifæri til að hlýða á fulltrúa dómsmálaráðuneytisins, að þeir kæmu fyrir nefndina. Kannski hefði verið hægt að afstýra einhverju af því sem er kannski að fara að gerast hér, því ekki hef ég skilið þessa afstöðu meiri hlutans í málinu, í það minnsta hvað skylduna varðar.

En það er rétt að geta þess að að þessu nefndaráliti 1. meiri hluta, auk þess sem hér stendur, standa hv. þingmenn Jón Pétur Zimsen og Snorri Másson. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi umræðum hér í þingsal um málið og hlýða á ræður þeirra þingmanna sem ætla að leggja orð í belg. Það er verkefni að smíða reglur um þessi mál, hvort heldur sem eru hælismál eða almenn útlendingamál, með þeim hætti að við náum öllum þeim markmiðum sem við viljum stefna að, gera það þannig að sómi sé að fyrir íslenskt samfélag, gera það í samræmi við stjórnarskrána okkar, gera það í samræmi við þær mannréttindareglur sem við viljum virða. Það er verk að vinna, það er náttúrlega önnur samsetning þingmanna og skoðana hér til þessara mála á þessu þingi. Það er gott og vel og ég hlakka til áframhaldandi vinnu í þessum málaflokki á næstu misserum. — Ég læt þetta nægja í bili.