útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það mátti skilja það á samtölum mínum við aðra þingmenn að það væri einmitt þetta atriði sem erfitt væri að mynda samstöðu um í nefndinni frekar en skyldan á heimildinni. Ég hafði ákveðinn skilning á því sjónarmiði að það væri einhver ótti við það hjá meiri hluta nefndarinnar að upptalningin sem slík gæti verið takmarkandi eins og það væri tæmandi talið hvaða brot ættu heima þarna undir. Ég deildi sjálfur ekki þeim áhyggjum og tel raunar að nefndarálitið sem liggur að baki breytingartillögunum kveði skýrar á um að þarna eru í dæmaskyni nefnd tiltekin brot. Ég deili því ekki þeim áhyggjum. Þetta varð hins vegar niðurstaðan í nefndinni og mig hefði frekar grunað einmitt að þessu yrði skipt upp. Við gætum myndað samstöðu í nefndinni um skylduna sjálfa, að það væri þá skylt að afturkalla alþjóðlega vernd í þessum alvarlegustu málum en upptalningin á heimildabrotunum fengi kannski aðra útfærslu.