útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar til að koma aðeins inn á þessi endurteknu brot sem við erum líka að fjalla um í þessu samhengi, ef einhver gerist endurtekið brotlegur. Nú veit ég að hv. þingmaður hefur mikla reynslu á þessu sviði, og bara þannig að fólk skilji: Hvað getum við verið að tala um langan tíma, ef við erum að tala um tvö brot eða þrjú brot, frá því að mál sætir rannsókn þangað til það hefur náð að fara í gegnum ólík dómstig? Hvað erum við að tala um ef við horfum á meðaltíma í dómskerfinu frá því að einhver fremur endurtekin brot og þangað til þetta lagaákvæði á við?