útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir síðara andsvarið. Vissulega getur málsmeðferð fyrir dómstólum og ákæruvaldi tekið þó nokkurn tíma. Hér er gert að skilyrði í ákveðnum tilfellum að um ítrekuð brot sé að ræða og almennt er það bæði í frumvarpi stjórnarinnar og þá með breytingartillögum okkar gert það að áskilnaði að um endanlegan dóm sé að ræða. Það er mjög varfærnisleg nálgun en við viljum auðvitað gæta að þeirri meginreglu að menn teljist saklausir uns sekt þeirra er sönnuð.
Varðandi tímann þá getur í raun og veru verið tvíþætt mat þar. Í fyrsta lagi getur einhver hrina brota sem á sér stað yfir ákveðinn tíma leitt til handtöku eða gæsluvarðhalds og svo hefur það sinn gang í réttarvörslukerfinu og það getur tekið kannski eitt til tvö ár jafnvel en svo geta verið brot yfir enn þá lengri tíma ef það jafnvel líða ár á milli afbrota.
En ég vil árétta að þetta frumvarp hér er ekki að fara að breyta öllu hvað útlendingamálin varðar. Þetta er ekki að fara að leysa stabbann af þeim málum eða vandamálum sem við erum að glíma við en þetta er fyrsta skrefið í að draga línu í sandinn um að fólk sem fremur alvarleg afbrot hér á landi fær ekki notið verndar samfélagsins okkar. Það eru ekki margir einstaklingar, sem betur fer, sem heyra þarna undir og munu lenda í þessum reglum. Þeir verða þó fleiri ef skyldan yrði samþykkt eins og við erum að mæla fyrir um heldur en eingöngu heimildarákvæðin.